Lexus Kauptúni frumsýndi um síðustu helgi nýjustu viðbótina við rafbíla línu japanska lúxusbílaframleiðandans, sem er Lexus ES 500e. Ný kynslóð Lexus ES sameinar fágaðan lúxus, kraftmikla frammistöðu og framsækna hönnun.
Bíllinn hefur fengið nýtt og glæsilegt útlit sem hefur vakið verðskuldaða athygli. Nýja útlitið heldur í grunngildi Lexus að bíllinn sé fyrst og fremst Lúxusbíll en gefur einnig frá sér stemninguna að bíllinn sé sportlegur.
Bíllinn er fjórhjóladrifinn og hefur tvo rafmótora, bæði að framan og aftan, sem skila honum alls 343 hestöflum. Bíllinn er 5,5 sekúndur frá kyrrstöðu í hundraðið. Drægnin er allt að 529 km samkvæmt WLTP staðli, og með hraðhleðslu er hægt að hlaða úr 10% í 80% á 28 mínútum.
Mikilvægur búnaður sem fylgir ES er næsta kynslóð af Lexus Safety System+ sem grípur fyrirbyggjandi inn í akstursaðstæður, styður betur við ökumann og dregur úr líkum á árekstrum.







