Nýr Toyota bZ4X Touring var forsýndur hjá Toyota í Kauptúni á dögunum. Um er að ræða nýjan rafbíl sem er raunar lengri og stærri útgáfa af hinum vinsæla bZ4X. Hann sameinar rúmgott innanrými og góða aksturseiginleika.
Toyota bZ4X Touring er 4.830 mm langur og lengri og hærri en hefðbundinn bZ4X. Hann er með 669 lítra skott sem stækka má í 1.718 lítra með því að fella aftursætin niður.
Bíllinn er í boði bæði framhjóla- og fjórhjóladrifinn. Í fjórhjóldadrifsútfærslu skilar rafhlaðan alls 380 hestöflum og er aðeins 4,5 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið.
Drægnin er 479 km samkvæmt WLTP staðli. Með framhjóladrifin er drægnin meira eða alls 591 km samkvæmt WLTP. Rafhlöðurnar skila bílnum 224 hestöflum og hann er 7,3 sekúndur í hundraðið. Hleðslutíminn er um 28 mínútur frá 10% í 80%.







