FÍB sendi í dag inn umsögn um frumvarp til laga um tímabundna lækkun virðisaukaskatts af eldsneyti. Þessar aðgerðir eru skynsamlegt viðbragð við skyndilegri utanaðkomandi kostnaðarhækkun og verðsveiflum á alþjóðlegum orkumörkuðum. Samkvæmt frumvarpinu á skattalækkunin að lækka vísitölu neysluverðs um tæplega 0,3%. Þessi skattabreyting mun hafa bein lækkunaráhrif á rekstur fjölskyldubíla með brunahreyfil.
Hér undir má sjá dæmi um áhrif lækkunar virðisaukaskatts á eldsneyti úr 24% í 11%:

FÍB fagnar frumvarpinu sem er í anda þess málflutnings sem félagið hefur haldið á lofti að undanförnu. Heimsmarkaðsverð á hráolíu (Brent) var í upphafi árs um 62 USD á tunnu en var komið í ríflega 118 USD þann 31. mars sl. Frá því að átökin í Íran hófust 28. febrúar hafa miklar hækkanir og mikið flökt verið á hráolíuverði á alþjóðlegum mörkuðum. Þann 8. apríl var komið á vopnahléi í tvær vikur. Hráolíuverð lækkaði í kjölfarið og er núna að sveiflast á milli 95 og 100 USD. Verðhækkunin hefur verið mest yfir 70% en er núna í kringum 50%.
Eftirlit með eldsneytissölu
Í frumvarpinu eru auknar valdheimildir til Samkeppniseftirlitsins um aðhald með framkvæmd tímabundinnar lækkunar virðisaukaskatts á eldsneyti.
FÍB er hlynnt þessum auknu valdheimildum um eftirlit með eldsneytissölu á íslenska fákeppnismarkaðnum. Það gæti verið æskilegt að hafa þetta ákvæði varanlegt en ekki tímabundið. Á stærri og þróaðri mörkuðum líkt og í Belgíu, Þýskalandi, Danmörku og víðar hafa stjórnvöld ríkt eftirlit með eldsneytismarkaðnum þar sem sala eldsneytis vegur drjúgt í neyslu almennings og fyrirtækja með tilheyrandi áhrifum á vísitölu neysluverðs.

Ef fyrirtækjum með sögu um samráð er ekki treystandi til þess að skila sanngjörnu vöruverði til neytenda þá geta stjórnvöld ekki vikið sér undan eigin ábyrgð. Einokun og fákeppni heldur framboði vöru undir eðlilegri eftirspurn. Afleiðingin er hærra verð vegna hærri álagningar. Þegar samkeppni vantar minnkar hvatinn til að bæta reksturinn eða lækka kostnað. Fákeppni skekkir markaðinn og bitnar á neytendum.







