Arnarnesvegur apríl 2026

Framkvæmdum við nýjan Arnarnesveg miðar vel áfram

Lestími: < 1 mín

Framkvæmdum við nýjan Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, miðar vel áfram. Fjölda lykilverkefna er lokið og unnið er að frágangi brúa, undirganga og vegtenginga. Í maí er áætlað að hefja malbikun á Breiðholtsbraut.  

Framkvæmdin er umfangsmikil og unnið er á nokkrum stöðum í einu. Um 50 manns starfa við verkið, þar á meðal smiðir, vélamenn, verkamenn og verkstjórar. 

Á nýju brúnni yfir Breiðholtsbraut er unnið við uppsetningu vegriða og hljóðveggs, sem aðskilur akbrautina frá göngu- og hjólaleiðinni. Einnig er unnið að ýmsum frágangi sem er á lokametrunum. 

Núna í maí er síðan reiknað með að hefja malbikun yfirlaga á Breiðholtsbraut og vegtenginga að nýju brúnni. Búast má við einhverjum umferðartöfum vegna þeirrar vinnu. 

Áætluð verklok í nóvember

Þá er ný göngubrú í smíðum yfir Arnarnesveg, til móts við Turnahvarf. Brúardekkið var steypt í byrjun apríl en nú er unnið við ýmsan frágang, svo sem handriði á brúnni. Auk þess er verið að taka verkpalla niður.  

Ný undirgöng, sem eru í byggingu undir Arnarnesveg við Rjúpnaveg, eru að hluta til gerð úr forsteyptum einingum. Einingarnar eru nú komnar á sinn stað. Unnið er við frágang þeirra og uppsteypu stoðveggja, sem verða við enda undirganganna. 

Áætluð verklok Arnarnesvegar og tengdum framkvæmdum eru í nóvember 2026.

Deila grein: