22% hækkun rekstrarkostnaðar í bílatryggingum

Lestími: < 1 mín

Á síðasta ársfjórðungi 2025 hækkaði rekstrarkostnaður tryggingafélaganna um 22% í lögboðnum ökutækjatryggingum (skyldutryggingum) frá því sem var á þriðja ársfjórðungi. Rekstrarkostnaður kaskótrygginga hækkaði um 16% á sama tímabili. Þetta kemur fram í gagnatöflum fjármálaeftirlits Seðlabankans.

Verðbólga skýrir aðeins lítinn hluta þessarar miklu hækkunar rekstrarkostnaðar og því síður kjarasamningar. Samningsbundin launahækkun starfsmanna fjármálafyrirtækja var aðeins 3,5% á árinu 2025. Engar skýringar hafa borist frá Samtökum fjármálafyrirtækja (SFF) á þessari miklu hækkun.

Eins og gefur að skilja eru það bíleigendur sem á endanum borga reikninginn í gegnum hærri iðgjöld. Heildar rekstrarkostnaður ökutækjatrygginga var 10,5 milljarðar króna árið 2025. Alls námu iðgjöld þessara trygginga 56,4 milljörðum króna á síðasta ári. Það er 7 milljörðum króna hærri upphæð en heildarkostnaðurinn við rekstur allra 30 menntaskóla, fjölbrautaskóla og tækniskóla landsins.

Deila grein: