Tesla hættir framleiðslu á Model S og Model X

Lestími: < 1 mín

Fyrir 14 árum síðan var hugmyndin af rafmagnsbílum frekar hallærislegt fyrirbæri, þar sem þeir voru oft ekki flottastir í útliti. Það hins vegar breyttist þegar Tesla Model S kom fyrst á markaðinn. Þeir breyttu almnennri ímynd sem var á rafmagnsbílum á þeim tíma. Landslagið hefur breyst síðan fyrir 14 árum og er til mikið úrval af rafmagnsbílum í dag. 

Tesla hefur tilkynnt að Model S og Model X, tveir áhrifamiklir rafmagnsbílar, séu hættir í framleiðslu. Sala á Model S hefur minnkað með árunum, sérstaklega eftir komu Model 3 sem er svipaður en ódýriari og hefur því stærri markhóp. Nú leggur Tesla meiri áherslu á Model 3 og Model Y, sem verða flagskip bílaframleiðandans.

Model S fór fyrst í framleiðslu árið 2012, en það var hægt að fá bílinn með stærri rafhlöðu og ágætis drægni á þeim tíma, í kringum 400 km. Bíllinn var einnig afkastamikill eða um 400 hestöfl. Model S breytti landslaginu með tölvuskjánnum og að allar aðgerðir fara í gegnum hann. Í dag eru margir bílaframleiðendur að innleiða svipaða hugmyndafræði, þó það sé umdeilt.

Model X kom á markaðinn árið 2015. Hann var sportlegur en að mestu stóð ekkert mikið út frá öðrum jeppum á sínum tíma. Þangað til að hurðirnar opnuðust, þá leit hann allt í einu út eins og geimskip úr framtíðinni. 

Model S og Model X voru brautryðjandi í tækni og þróun rafmagnsbíla.

Deila grein: