Aukin sala í rafbílum í Evrópu vegna stríðsins

Lestími: < 1 mín

Þrátt fyrir að mörg Evrópulönd hafi lækkað álög vegna dísel- og bensínkaupa, er nú ódýrara að kaupa orku á rafbíla. Þar af leiðandi eykst sala á nýjum rafbílum ört í þessum heimshluta.

Stríðið í Íran hefur orðið þess valdandi að verð á bensíni og díselolíu í Evrópu hefur hækkað. Verðhækkunin nemur um 19% í Evrópu það sem af er ári fram í apríl, að því er fjárfestingarbankinn Jefferies greinir frá í skýrslu þann 7. maí, sem endursögð er í Automotive News.

Á sama tíma hefur kostnaður við að hlaða rafbíl heima, eða á hraðhleðslustöðvum við þjóðvegi, haldist tiltölulega stöðugur. Talið er að heimahleðsla kosti um það bil helming þess sem það kostar að fylla tankinn á bensínbíl.

Verulegur orkusparnaður

Áður fyrr var orkuverð á hraðhleðslustöðvum töluvert hærra en bensínverð miðað við sambærilegt orkumagn í flestum Evrópulöndum, en nú er það svipað. Tryggingafélagið Allianz kallar þetta „kröftuga auglýsingu fyrir rafvæðingu“.

Í nýlegri skýrslu telur Allianz að núverandi markaðsaðstæður veiti rafbílum „verulegan orkusparnað, sem samsvarar 4 til 5 prósenta aukningu á kaupmætti á hvern íbúa að meðaltali í Vestur-Evrópu“.

Staðan hefur einnig haft áhrif á val neytenda á svæðinu. Vöxtur var í rafbílasölu strax í upphafi árs.15% í janúar og 19% í febrúar í mörgum löndum innan ESB. Aukningu er líka að sjá í Bretlandi og löndum innan EFTA.

Vöxtur allt árið

Eftir að stríðið hófst í lok febrúar jókst rafbílasala um 43% í mars og 37% í apríl. Hlutdeild rafbíla í einstökum löndum er að  Noregur leiðir hópinn með 97% hlutdeild, þar á eftir koma Danmörk með 74%, Finnland 41% og Holland 38%

Ítalía 7%, Pólland 8% og Spánn 9% eru með lægstu hlutdeild rafbíla. Ítalía var hins vegar með einn mesta vaxtarhraðann í apríl, þar sem salan nánast tvöfaldaðist. Þá seldust 13.238 bílar miðað við 6.666 í apríl 2025.

Deila grein: