Sala á raf- og tengiltvinnbílum í heiminum eykst um 17% á þessu ári Sala á raf- og tengiltvinnbílum í heiminum eykst um 17% á þessu ári

Forstjóri BYD spáir endalokum eldsneytisbíla

Lestími: 2 mín

Stella Li, aðstoðarforstjóri kínverska rafbílarisans BYD í Ameríku, birti nýverið djarfa spá um framtíð bílaiðnaðarins. Í samtali við Financial Times sagði hún að hröð tækniþróun rafbíla muni gera bensín- og dísilbíla nánast úrelta innan fárra ára. Hækkun olíuverðs á heimsvísu í kjölfar stríðsins í Íran hefur breytt viðhorfi margra bílakaupenda sem fram að þessu hafa verið tregir til að skipta yfir í rafbíl.

Li telur að breytingin muni gerast mun hraðar en margir sérfræðingar hafa spáð. Að hennar mati munu örar tækniframfarir og lækkandi framleiðslukostnaður rafbíla draga verulega úr hvata neytenda því kaupa brunahreyfilsbíla.

Stella Li, aðstoðarforstjóri BYD

Verðstríð og tækniframfarir

BYD hefur verið leiðandi í því að bjóða rafbíla á hagstæðu verði og er í dag söluhæsti rafbílaframleiðandi í heimi. Li bendir á að eftir því sem rafhlaðan (dýrasti hluti rafbílsins) verður ódýrari þá nái rafbílar ekki aðeins sama útsöluverði og sambærilegir eldsneytisbílar heldur verði í náinni framtíð hagstæðari valkostur en hefðbundnir bensín- eða dísilbílar.

„Eftir fimm ár verður olía ekki lengur eitthvað sem fólk kaupir sem orkugjafa í samgöngum.“ Li sagði einnig að viðhalds- og eldsneytiskostnaður bensín- og dísilbíla komi til með að verða umtalsvert hærri en reksturskostnaður rafbíla.

Áskoranir

Þrátt fyrir bjartsýni Li eru enn hindranir í veginum. Sum lönd og markaðir eiga lengra í land vegna skorts á innviðum fyrir rafbíla. Þetta á við um mörg fylki Bandaríkjanna en þar er einnig pólitískur þrýstingur um að halda áfram með jarðefnaeldsneyti og að verja bílaiðnaðinn í landinu gegn erlendri samkeppni með tollum.

Það er mat Li að neytendur muni á endanum ráða ferðinni. Aukin gæði rafbíla, meiri drægni og lægra verð mun ýta undir eftirspurnarfall eftir olíu.

Samantekt

Li spáir því að árið 2029-2030 verði vendipunktur þar sem eftirspurn eftir bensínbílum verði hverfandi. Rafbílar munu kosta minna í innkaupum og rekstri en sambærilegir eldsneytisbílar.

BYD ætlar sér stóra hluti á heimsvísu og nýtir stærðarhagkvæmni sína til að þrýsta verði niður um allan heim.

BYD (Build Your Dreams) framleiðir og þróar bíla, rafeindatæki, nýjar orkulausnir (sólarorka og orkugeymsla) og járnbrautakerfi. BYD fór fram úr Tesla sem stærsti framleiðandi hreinna rafbíla (BEV) á lokaársfjórðungi ársins 2023 og er stærsti framleiðandi rafknúinna bíla (BEV + PHEV) í heiminum í dag. BYD er eina bílafyrirtæki heims sem framleiðir eigin rafhlöður, rafmótora, örgjörva og stýrikerfi. Hjá samstæðunni starfa um 1.000.000 manns um allan heim.

Deila grein: