Bensínverð á Íslandi 22 krónum hærra en í mars

Lestími: 2 mín

Það hafa verið miklar sveiflur á alþjóðlegum olíumörkuðum undanfarið. Aukin bjartsýni um frið í Iran og yfirlýsingar um undirritun friðarsamnings næsta föstudag hafa skilað lægra heimsmarkaðsverði á olíu. Þessi lækkun virðist ekki vera að skila sér til íslenskra neytenda.

Hráolíuverð sambærilegt við verðin fyrir þrem mánuðum

Stríðið í Íran hefur haft áhrif á hagkerfi um allan heim, þar sem hækkun orkukostnaðar hefur ýtt undir hækkandi eldsneytisverð sem hefur leitt til aukinnar verðbólgu. Þetta hefur sett þrýsting á seðlabanka til að hækka vexti til að halda verðbólgu í skefjum.

Eldsneytisverð á Íslandi

Verð hér á landi hefur lítið breyst að undanförnu. Dísilolía lækkaði um 2 til 4 krónur á lítra um og fyrir síðustu helgi og Costco og N1 lækkuðu bensínverðið um 2 krónur á lítra.

Áhugavert er að bera saman verð fyrir tæpum þrem mánuðum og svo aftur núna. Þá var heimsmarkaðsverð á olíu og gengi Bandaríkjadals svipuðu róli og núna. Tíu daga samanburður á bensínverði frá 16. til 24. mars sl. við tíu síðustu dagana í júní er athyglisverður.

Meðalverð á bensínlítra á heimsmarkaði umreiknað í íslenskar krónur fyrir mars tímabilið var 100,60 krónur. Vegið meðallítraverð til neytenda frá dælu á íslenska markaðnum þá var 216,20 krónur en þá með 24% virðisaukaskatti. Ef verðið er umreiknað miðað við 11% vsk eins og er í gildi tímabundið þá fer lítraverðið til neytenda í 193,50 krónur.  Meðalheimsmarkaðasverð á lítra síðustu 10 daga er 100,40 krónur og vegið meðalútsöluverð frá dælu 215,90 krónur. Verðið núna er því ríflega 22 krónum hærra síðustu dagana samanborið við útsöluverðið í mars.

Bensínverðið um þessar mundir er nánast það sama og fyrir tæpum þremur mánuðum þegar virðisaukaskatturinn á hvern lítra var 24% en ekki 11%. Samkeppniseftirlitið er með tímabundnar valdheimildir til að tryggja aukið aðhald með verðmyndun á íslenska eldsneytismarkaðnum. Timabundin lækkun vsk virðist ekki vera að skila sér til neytenda og það væri áhugavert að fá skýringar á þessum mikla verðmun.

Nýtt eftir að frétt fór í loftið

N1 lækkaði bensínlítra um eina krónu í hádeginu og kjölfarið lækkuðu Orkan, ÓB og AO bensínlítrann um 2 krónur. Dísillítrinn lækkaði eftir hádegi um 3 krónur. Þessi verðlækkun setur meðalverð síðustu 10 daga á bensínlítra niður í 215,60 krónur sem breytir ekki viðmiðunum í greininni. Verðmunurinn er 22,10 krónur á lítra.

Deila grein: