Endurskoðun bílastæðamála í borginni

Lestími: 2 mín

Endurskoða á gjaldskyldutíma bílastæða í miðborginni, vinna að því að einfalda rafræna greiðslumáta fyrir bílastæði og fara yfir reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. Þetta er meðal þess sem samþykkt var í borgarstjórn í dag þar sem umhverfis- og skipulagsráði var falið að móta og afgreiða tillögur þar sem markmið er að leysa úr fjölþættum áskorunum sem snúa að bílastæðamálum í borginni.

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag tillögu nýs meirihluta um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík að því er fram kemur í tilkynningu.

Sjö tillögur að úrbótum í bílastæðamálum

Meðal þess sem verður tekið til skoðunar er stytting gjaldskyldutíma bílastæða í miðborginni í samráði við íbúa og rekstraraðila. Einnig verður unnið að því að einfalda rafræna greiðslumáta fyrir bílastæði og gera notendum auðveldara að greiða fyrir stæði.

Farið verður yfir reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar með það að markmiði að auka sveigjanleika og meta aðstæður í hverju tilviki fyrir sig.

Kortlagt verður hvar unnt er að taka bílastæði aftur í notkun í miðborginni og jafnframt skoðað hvernig samræma megi slíkar breytingar við útiveitingar og aðra aðstöðu í borgarrýminu. Metið verður hvort tímabundin aðstaða fyrir veitingarekstur sem í dag teygir sig inn á bílastæði eigi eingöngu að vera heimil yfir sumarmánuðina.

Í tillögunni er einnig lagt til að tryggður verði 90% afsláttur af gatnagerðargjaldi á bílastæðum í bílakjöllurum borgarinnar. Þá verður ráðist í úrbætur á bílastæðahúsum á vegum Bílastæðasjóðs með bættri lýsingu og auknu eftirliti.

Loks verður haft samráð við hagaðila um ný sleppistæði fyrir vörulosun í miðborginni með það að markmiði að auðvelda afhendingu vara og bæta aðgengi fyrir rekstraraðila.


„Bílastæðamál snerta daglegt líf fjölmargra borgarbúa og hafa áhrif á rekstrarskilyrði fyrirtækja. Það hefur verið mikil óánægja með ríkjandi fyrirkomulag og fullt tilefni til að gera breytingar“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. „Með þessari endurskoðun viljum við einfalda kerfið, bæta aðgengi og tryggja að bílastæðastefna borgarinnar taki mið af þörfum íbúa og atvinnulífs í vaxandi borg.“

Umhverfis- og skipulagsráð hefur fengið tillögurnar til meðferðar og afgreiðslu.

Deila grein: