Dregið hefur úr nýskráningum nýrra fólksbifreiða

Lestími: < 1 mín

Dregið hefur úr nýskráningum nýrra fólksbifreiða eftir því sem liðið hefur árið. Ágætis gangur var í bílasölu framan af árinu. Ástæða mikillar fjölgunar nýskráninga á fyrstu vikum ársins tengist fyrst og fremst hækkun vörugjalda um áramótin. Af þeim sökum var fjöldi bíla tollafgreiddur fyrir áramót, einkum bílaleigubílar, og þeir síðan skráðir og teknir í notkun í byrjun ársins. Fjölgunin endurspeglaði því tímasetningu tollafgreiðslu og skráninga frekar en skyndilega aukna eftirspurn í upphafi ársins.

Nýskráningar 7.071 það sem af er árinu

Nýskráningar nýrra fólksbifreiða það sem af er árinu eru 7.071 sem er tæpu einu prósenti minna en á sama tíma í fyrra. Þá voru þær alls 7.125 bifreiðar. Maímánuður er stærsti sölumánuðurinn á árinu en þá voru nýskráningar alls 1.547 og síðan janúar með alls 1.285 nýskráningar að því er fram kemur í tölum frá Bílgreinasambandinu. Nýskráningar til ökutækjaleiga nema 55,6% og til almennrar notkunar 43,4%.

Hlutdeild nýorkubíla er orðin rúmlega 88%

Langflestar nýskráningar eru í hreinum rafbílum, alls 2.915 bifreiðar sem er um 41,2% hlutdeild.Hybrid-bílar koma í öðru sæti með 1.783 bífreiðar og 25,2% hlutdeild. Tengiltvinnbílar eru í þriðja sæti með 1.541 bifreiðar sem er tæplega 22% hlutdeild á markaðnum. Hlutdeild nýorkubíla í nýskráningum er því alls rúmlega 88%. Hlutdeild bensínbíla er um 6% og dísilbíla 5,8%.

KIA með flestar nýskráningar

Þegar einstök bílamerki eru skoðuð er KIA með flestar nýskráningar það sem af er árinu. Þær eru alls orðnar 979 sem er um 13,8% hlutdeild. Toyota og Tesla koma nánast hnifjöfn í öðru til þriðja sæti. Toyota með 786 nýskráningar og Tesla með 785. Hyundai og Dacia koma í næstu sætum.

Deila grein: