Samkeppniseftirlitið hefur birt umræðuskjal um þróun eldsneytismarkaðar hér á landi og áhrif breytinga á opinberum gjöldum og virðisaukaskatti á eldsneyti. Umræðuskjalið byggir á ítarlegri gagnaöflun frá olíufélögum og m.a. greiningu Samkeppniseftirlitsins á þeim.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, fagnar umræðuskjalinu og auknum eftirlitsheimildum Samkeppniseftirlitsins. Það sem fram kemur í umræðuskjalinu er í samræmi við þann málflutning sem FÍB hefur haldið uppi í áraraðir.
Álagning á lítrann af díselolíu hefur hækkað um 50% að raunvirði frá árinu 2022
Í umræðuskjalinu kemur fram að álagning á lítrann af díselolíu hefur hækkað um 50% að raunvirði og um 25% á bensínlítrann frá árinu 2022. Álagning á bæði bensín og díselolíu hækkaði í samanburði við önnur Evrópulönd í aðdraganda upptöku kílómetragjalds um áramótin.
Af því tilefni var olíugjald á bensíni lagt niður með þeim afleiðingum að bensínlítrinn lækkaði um u.þ.b. 90 krónur.
Samkeppniseftirlitið (SKE) segir aftur á móti að olíufélögin hafi aukið álagningu sína í aðdraganda þessara breytinga, í samanburði við önnur Evrópulönd.
Verðmunur á Íslandi og öðrum Evrópuríkjum hafi aukist á síðustu árum
Í fréttatilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að í gögnunum kemur fram að álagning á bensíni og dísel hefur hækkað verulega á síðustu árum og að verðmunur á Íslandi og öðrum Evrópuríkjum hafi aukist á síðustu árum. Jafnframt bendir greiningin til þess að fyrri ályktanir Samkeppniseftirlitsins um fákeppnisaðstæður og vísbendingar um þegjandi samhæfingu á eldsneytismarkaði eigi enn við.
Samkeppniseftirlitinu var með lögum nr. 34/2026 falið að fylgjast með því að tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti skilaði sér að fullu til neytenda á tímabilinu 1. maí til 31. ágúst 2026. Athugun eftirlitsins tekur þó ekki aðeins til þess hvort dæluverð lækkaði þegar breytingin tók gildi 1. maí, heldur einnig til breytinga á álagningu í aðdraganda skattalækkunarinnar og á meðan hún gildir.
Samkeppniseftirlitið kallað eftir frekari skýringum frá viðkomandi olíufélögum
Í umræðuskjalinu kemur fram að ýmsum spurningum sé enn ósvarað áður en hægt sé að fullyrða að virðisaukaskattslækkunin hafi í öllum tilvikum skilað sér að fullu í endanlegu útsöluverði eldsneytis. Greiningin bendir meðal annars til verðhækkana hjá sumum olíufélögum rétt fyrir gildistöku skattalækkunarinnar og hækkandi álagningar eftir 1. maí. Af þeim sökum hefur Samkeppniseftirlitið kallað eftir frekari skýringum frá viðkomandi olíufélögum. Að þeim fengnum mun eftirlitið taka afstöðu til þess hvort tilefni sé til frekari aðgerða.
Þá bendir greiningin til þess að innlent eldsneytisverð hafi fylgt hækkunum á heimsmarkaðsverði betur en lækkunum þess. Að mati Samkeppniseftirlitsins gefur sú þróun, ásamt öðrum niðurstöðum umræðuskjalsins, tilefni til frekari rannsóknar á verðmyndun eldsneytis hér á landi.
Óskað er eftir ábendingum um möguleg brot á samkeppnislögum
Með birtingu umræðuskjalsins kallar Samkeppniseftirlitið jafnframt eftir sjónarmiðum fyrirtækja, hagsmunaaðila og almennings. Óskað er eftir ábendingum um möguleg brot á samkeppnislögum, aðrar samkeppnishindranir, hindranir af hálfu hins opinbera og hugmyndum að aðgerðum sem gætu stuðlað að virkari samkeppni og lægra eldsneytisverði.
Frestur til að skila sjónarmiðum er til 15. ágúst 2026.





