Lego mætir aftur til leiks í Formúlu 1

Lestími: < 1 mín

Leikfanga fyrirtækið Lego ætlar að halda uppi skemmtuninni fyrir breska kappaksturinn núna um helgina. Þetta er einskonar sýning sem verður haldin fyrir aðal keppnina. Í fyrra fyrir kappaksturinn í Miami, óku keppendur um á kappakstursbílum sem voru smíðaðir úr Lego kubbum. Bílarnir voru nógu stórir fyrir tvo liðsfélaga saman í bíl og skemmtu keppendurnir sér mjög vel.

Eftir miklar vinsældir í Miami-kappakstrinum á síðasta ári hefur Lego ákveðið að ganga skrefinu lengra. Í stað tveggja sæta bíla eins og síðast, munu allir 22 ökumennirnir fá sinn eigin sérhannaða smábíl. Hver bíll samanstendur af 28.000 kubbum og tók samsetningin alls 6.400 klukkustundir. Bílarnir vega um 280 kg í heildina en Lego kubbarnir eru aðeins 64 kg. 

Bílarnir geta náð hraða allt að 25 km/klst

Bílarnir geta náð hraða allt að 25 km/klst sem er svipað og rafskúta. Rafhlaðan dugar nákvæmlega fyrir einn hring á Silverstone-brautinni. Hraðinn er ekki mikill en skemmtunin verður sennilega í hámarki hjá ökumönnunum. 

Hannaðir og smíðaðir af 20 manna sérfræðingateymi

Bílarnir voru hannaðir og smíðaðir af 20 manna sérfræðingateymi Lego í Kladno í Tékklandi. Þetta er sami staður og Miami-bílarnir voru búnir til. Julia Goldin, yfirmaður vöru- og markaðsmála hjá Lego, segir að ákvörðunin hafi verið tekin eftir ábendingar frá aðdáendum og ökumönnum sem vildu sjá meira af þessu tagi. 

Deila grein: