Lada Sport fær loksins líknarbelg

Lestími: < 1 mín

Rússneski bílaframleiðandinn AvtoVAZ hefur kynnt uppfærða útgáfu af Lada Niva Legend eða Lada Sport eins og við íslendingar þekkjum hana. Í fyrsta sinn í sögu bílsins er líknarbelgur fyrir ökumann hluti af staðalbúnaði. Lada Niva hefur verið í framleiðslu síðan 1977 í nær óbreyttri mynd og er þetta án efa stærsta öryggisuppfærslan til þessa.

Uppfærslan var kynnt á St. Pétursborgar-efnahagsráðstefnunni og telur meira en 100 nýja eða endurbætta íhluti. Stýrishjólið er nú fengið að láni úr Lada Granta og gerir líknarbelginn mögulegan, auk þess sem svissinn hefur verið færður og gírstöngin er nær ökumanni. Þá er búið að einfalda stýringu í millikassa fyrir fjórhjóladrifið.

Búið er að auka á tæringarvörn umtalsvert á nær allri yfirbyggingunni með tvöfaldri sinkhúðun. En tæring hefur verið eitt að aðalseinkennum bílsins um árabil.

Undir vélarhlífinni tekur nýr 1,8 lítra mótor við af þeim eldri sem var 1,7 lítrar. Því mun aflið aukast um rúmlega 8 prósent eða heil 7 hestöfl. Að innan er bíllinn færður í nútímalegra horf og fær meðal annars upplýsinga- og afþreyingarskjá.

Þrátt fyrir þessar breytingar heldur Lada sig við grunngildin, þ.e. einfaldleika og notagildi.

Heimild: motor.no

Deila grein: