Moskvitch 408 sóvíeski valkosturinn á sjöunda áratugnum

Lestími: < 1 mín

Mikið var um að vera á sjöunda áratugnum og þá sérstaklega á milli stórvelda heimsins á þeim tíma, Bandaríkin og Sóvétríkin. Á þessum tíma komu fyrstu Bandarísku vöðvabílarnir (e. Muscle car) en á sama tíma er mikil bílaframleiðsla í gangi í Sóvétríkjunum. 

Moskvitch 408 var einn af aðal bílunum sem kom frá Sóvétríkjunum á þessum tíma. Hann var framleiddur af MZMA/AZLK verksmiðjunum frá árunum 1964 til 1975. Ytra útlit bílsins var hannað af Alexander Veselov og þótti mjög nútímalegt á þessum tíma. Hönnunin dró mikinn innblástur af vestrænum bílum sjöunda áratugsins, m.a. BMW 700.

1,36 lítra bensínvél og 50 hestöfl

Hann var búinn 1,36 lítra bensín vél sem gaf bílnum 50 hestöfl. Þetta var nógu mikið afl fyrir bílinn til að ná allt að 130 km/klst. hámarkshraða. Bíllinn kom einnig með fjögurra gíra beinskiptingu. 

Í fyrstu útfræslu bílsins sem var frá 1964 til 1969 voru framljósin hringlöguð og afturljósin voru lóðrétt. Framsætið var langur bekkur og gírstöngin var við stýrið. Í seinni útfærslunni voru framljósin ferhyrnd og afturljósin urðu lárétt. Einnig var stór breyting á gírskiptingunni en hún færðist niður í gólf. Vélin hins vegar breyttist ekki neitt eftir útfærslum. 

Einhver eintök af Moskvitch 408 komu til Íslands á þessum tíma.

Deila grein: