Japanski lúxusbíllinn Toyota Century með V12 vél

Lestími: < 1 mín


Toyota Century er einn af fáum lúxus bílum sem voru framleiddir undir Toyota merkinu, en fyrsti Century bíllinn kom á markað árið 1967. Nafnið er til heiðurs 100 ára afmælis Sakichi Toyoda sem stofnaði Toyota árið 1867, þess vegna fékk bíllinn nafnið Century sem þýðir öld á íslensku. Í þessari grein verður fjallað um aðra kynslóð Toyota Century.
Árið 1997 kom út önnur kynslóð af Toyota Century, en hún var öðruvísi útlitslega og kraftmeiri en áður. Seinni kynslóðin var fyrst og fremst hugsuð sem lúxus bifreið og hélt þeirri ímynd til lengri tíma. Útflutningur á Toyota Century var í takmörkuðu upplagi og aðalmarkaðarnir voru Evrópa og Norður Ameríka. Ári seinna var bíllinn seldur í Kína og Mið-Austurlöndunum, en hann var markaðssettur sem stjórnenda bíll fyrir fyrirtæki og embættismenn. Enn þann daginn í dag er önnur kynslóðin eini Century bíllinn sem hefur verið seldur fyrir utan japanska markaðinn.

Eini japanski V12 bíllinn

Undir vélarhlífinni má finna 5 lítra V12 vél, heitir fullu nafni 1GZ-FE V12. Vélin skilar bílnum 280 hestöflum og togkrafturinn er 481 Nm. Það er gott fyrir lúxus bifreið á þessum tíma. Fyrst var fjögurra þrepa sjálfskipting í bílnum en árið 2005 kom sex þrepa. Toyota Century er eini bíllinn sem er búinn V12 vél og er framleiddur í Japan, allavegana eini sem er löglegur á götunni.

Eins og aðrir bílar sem eru hannaðir sem lúxusbílar var mikil áhersla lögð á aftursætin. Hægt er að halla aftursætunum og fyrir hámarksþægindi er hægt að brjóta saman farþegasætið að framan fyrir meira pláss. Einnig er hægt að finna nudd í aftursætunum. 

Deila grein: