Þegar horft er á bílamarkaðinn í Asíu, stendur Japan út þar sem mikil bílamenning ríkir í landinu. Fyrir bílaframleiðendur er Japan sérstök þar sem mikil ástríða er fyrir bílum og þá sérstaklega afkastamiklum bílum. Þessi menning hefur t.d. Hjálpað Lamborghini að komast á framfæri í landinu. Lamborghini hefur verið að selja bíla í Japan í 25 ár.
Til að fagna þessum 25 ára áfanga og sterku sambandi við Japan, afhjúpaði Lamborghini sérstakan Revuelto Impavido. Þetta er ofurbíll sem framleiddur verður í aðeins 25 eintökum, eingöngu fyrir japanska markaðinn.
Hönnun bílsins sækir innblástur í anda Bushido, hinn japanska heiðurskóða sem einkennist af hugrekki, aga og ákveðni. Útlit bílsins minnir á brynju Samurai, á hurðunum má finna línur sem eiga að minna á högg frá hinu sígilda Katana-sverði. Nafnið Impavido er dregið af ítölsku orði sem þýðir óttalaus eða hugrakkur. Lamborghini blandar saman menningarheimum Japans og Ítalíu í þessu verkefni.
Lamborghini Revuelto Impavido verður í boði í fjórum sérstökum litum. Það eru tvær glans útfærslur sem kallast Verde Campus, sem minnir á grænan skrautstein, og Grigio Artis Lucido, sem dregur innblástur frá Katana-sverðinu. Hinar tvær útfærslunar eru mattar, en þær kallast Grigio Crater Matt, sem minnir á svarta brynju Samurai, og Rosso Pyra, sem tengist Sanada rauðum og á að tákna hugrekki og styrk.







