Hvergi fleiri bensínstöðvar miðað við íbúafjölda

Lestími: 2 mín

Ísland toppar listann yfir framboð bensínstöðva miðað við höfðatölu innan Evrópu. Íslendingar eiga hlutfallslega fleiri bíla í umferð miðað við íbúafjölda samanborið við meðaltalið í Evrópu. Fjölgun bílaleigubíla og vöxtur ferðaþjónustunnar hefur aukið það hlutfall. Íslendingar eiga tæplega 0,8 bíla á hvern íbúa en Danir innan við 0,5 bíla.

Fjöldi bensínstöðva

FÍB hefur tekið saman gögn um fjölda bensínstöðva í Evrópu, fjölda bíla í umferð á hverja bensínstöð og fjölda íbúa hvers lands á hverja bensínstöð. Bensínstöðvar eru mismunandi og mikill munur á þjónustu. Um alla Evrópu hefur hlutfall ómannaðra stöðva aukist á sama tíma og stöðvum hefur fækkað. Úttekt FÍB byggir á gögnum frá Hagstofu Íslands, Samgöngustofu, heimasíðum íslenskra eldsneytissala, ACEA, FuelsEurope og Drivkraft Danmark.

Bensínstöðvar í Evrópu: Ísland sker sig úr

LandBensínstöðvarBílar á stöðÍbúar á stöð
🇮🇸 Ísland2561.1981.521
🇬🇷 Grikkland5.5701.0301.777
🇧🇬 Búlgaría3.4559021.930
🇪🇪 Eistland5351.6262.488
🇨🇿 Tékkland3.9611.6772.658
🇮🇹 Ítalía21.7501.9012.709
🇨🇭 Sviss3.3131.4742.719
🇩🇰 Danmörk2.1221.3462.839
🇱🇺 Lúxemborg2381.9212.888
🇫🇮 Finnland1.9431.4242.893
🇮🇪 Írland1.8401.3452.911
🇵🇹 Portúgal3.4011.7553.057
🇱🇻 Lettland5931.3223.096
🇳🇴 Noregur1.8231.5643.101
🇦🇹 Austurríki2.7241.9213.343
🇧🇪 Belgía3.0641.9613.843
🇪🇸 Spánn12.3462.1443.877
🇸🇮 Slóvenía5322.3813.975
🇸🇪 Svíþjóð2.6431.8834.048
🇭🇷 Króatía9252.1644.132
🇨🇾 Kýpur3202.0234.281
🇳🇱 Holland4.1312.3294.466
🇭🇺 Ungverjaland2.0322.0974.717
🇵🇱 Pólland7.9372.5834.768
🇸🇰 Slóvakía1.1002.4824.955
🇩🇪 Þýskaland14.3763.4325.818
🇱🇹 Litháen4742.9735.901
🇫🇷 Frakkland10.8063.6776.177
🇲🇹 Malta774.2927.312
🇬🇧 Bretland8.3654.5798.360
🇷🇴 Rúmenía1.5075.60712.476

Búlgaría með fæsta bíla á bensínstöð

Fæstir bílar á bensínstöð eru í Búlgaríu eða 902 bílar á stöð. Grikkland er í öðru sæti með 1.030 bíla á stöð og þá Ísland með  tæplega 1.200 bíla á stöð.

Flestir bílar á bensístöð eru í Rúmeníu eða 5.603. Þar á eftir kemur Bretland með 4.579 bíla á stöð og Malta í þriðja sæti með 4.292 bíla á stöð.

Ísland sker sig úr miðað við íbúafjölda

Fæstir íbúar á bensínstöð eru á Íslandi eða 1.521. Næst kemur Grikkland, með allar sínar eyjar, með 1.777 íbúa á stöð. Búlgaría er í þriðja neðsta sæti með 1.930 íbúar á stöð.

Flestir íbúar á stöð eru í Rúmeníu eða 12.476. Á Bretlandseyjum eru 8.360 íbúar á hverja stöð og Frakkland er í þriðja sæti með 6.177 íbúa á stöð.

Norðurlöndin

Af Norðurlöndunum er Ísland á toppnum. Danir komast næst okkur með sínar 2.122 bensínstöðvar og 1.346 bíla á stöð. Í Danmörku eru 2.839 íbúar á stöð. Finnar eru með 1.943 bensínstöðvar og þar eru 1.424 bílar á stöð og 2.893 íbúar á stöð. Í Noregi eru 1.823 bensínstöðvar, 1.564 bílar á stöð og 3.101 íbúar á stöð. Í Svíþjóð eru 2.643 bensínstöðvar með 1.883 bíla á stöð og 4.048 íbúa á stöð.

Deila grein: