Þýskir bílaframleiðendur upplifa krísuástand í Kína

Lestími: 2 mín

Þýsk verkfræði var lengi álitin mesta stöðutákn á kínverska markaðnum, sem er einn sá stærsti í heiminum. Í dag er sú arfleifð að leysast upp á ógnarhraða. Þýsku bílaframleiðendurnir Mercedes-Benz, BMW og Volkswagen fylgjast hjálparlausir með markaðshlutdeild sinni hverfa á meðan innlendir framleiðendur á borð við BYD og Xiaomi ná yfirburðum.  Evrópskir framleiðendur ganga í samstarf til að koma til móts við þennan gríðarlega nýsköpunar hraða sem ríkir í Kína. 

Ósamkeppnishæf verðlagning og brotin viðskiptamódel

Nýleg markaðsherferð Mercedes-Benz í Kína, í samstarfi við McDonalds, þar merki bílaframleiðandans kom fram hamborgaraformi með það í huga að skera sig úr. Herferðin sló hins vegar ekki í gegn og mátti sjá það í sölutölum fyrri hluta ársins þar sem Mercedes-Benz seldi aðeins 1.150 eintök. Til samanburðar afhenti kínverski tæknirisinn Xiaomi yfir 80.000 eintök af SU7 rafbílnum á sama tímabili. Kínverskir kaupendur velja frekar innlenda valkosti sem búa yfir meiri tæknibúnaði. 

BMW stendur ekki betur að vígi

BMW stendur ekki betur að vígi. Fyrirtækið neyddist til þess að skera niður áætlað hagnaðarhlutfall sitt fyrir núverandi ár niður í 1% sem skrifast nær eingöngu á söluhrun í Kína. Þrátt fyrir miklar fjárfestingar í komandi rafbílalínu, Neue Klasse, er verðlagning BMW algjörlega ósamkeppnishæf. Gerðir eins og iX3 eru mun dýrari en álíka bílar frá kínverskum bílaframleiðendum. 

Staðan er þó líklega alvarlegust hjá Volkswagen. Forstjóri Volkswagen hefur viðurkennt áður að viðskiptamódel fyrirtækisins væri ekki nógu gott og þarf að loka verskmiðjum í Þýskalandi. Volkswagen hefur leitað í samstarf við kínversku rafbílaframleiðendurna, Xpeng og SAIC, í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga stöðu sinni á markaðnum. 

Ólíkur neytendahópur

Grundvallar vandamálið er þróunarhraði. Þýskir bílaframleiðendur búa enn við hægfara, fjögurra ára þróunarferli sem á rætur sínar að rekja til bensín aldarinnar. Kínverski rafbíla markaðurinn starfar aftur á móti eins og rafeindatækni geirinn, þar sem nýir, uppfærðir og hugbúnaðar drifnir bílar eru kynntir á 18 mánaða fresti. 

Evrópsk bílamerki með mikla arfleifð reyna að keppa á grundvelli hefðbundinna eiginleika, en horfa framhjá því að kínverskir neytendur krefjast stafræns umhverfis, eins og flókin afþreyingarkerfi og gervigreindar búnað. 

Deila grein: