Klæðingu hefur verið skipt út fyrir malbik á tæplega tveggja kílómetra kafla á Öxnadalsheiði. Verkefninu lauk núna í byrjun vikunnar. Framkvæmdin er liður í átaksverkefni Vegagerðarinnar þar sem malbik er lagt á vegkafla sem mikið mæðir á.
Malbikun Akureyrar sá um framkvæmdina við góðar aðstæður en malbikaður var tæplega tveggja kílómetra kafli þar sem álag vegna umferðar, viðhalds og vetrarþjónustu er mikið og bikblæðingar í klæðingu verið tíðar. Með malbikun er dregið úr hættu á slíkum skemmdum.
Framkvæmdin er hluti af átaksverkefni í lagningu malbiks á viðkvæmum vegköflum sem hófst síðasta sumar. Nýi kaflinn er í beinu framhaldi af rúmlega þriggja kílómetra kafla sem malbikaður var á Öxnadalsheiði í fyrra.
Umferð um Öxnadalsheiði er mikil yfir sumartímann og því var áskorun að halda veginum opnum meðan á framkvæmdum stóð. Umferð var stýrt um vinnusvæðið enda er hjáleiðin löng og liggur út fyrir Tröllaskaga um Múlagöng og Strákagöng eða um Lágheiði.






