Í nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var á fundi í morgun er lagt til að kílómetragjald á ökutæki hækki um 15,9%, þ.e. í 5,2% í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2027, auk fjögurra milljarða tekjuauka til samræmis við markmið um að tekjur af ökutækjum og eldsneyti nemi 1,7% af vergri landsframleiðslu.
Þetta kemur fram í tengslum við lagabreytingar vegna tekjuhliðar fjárlagafrumvarpsins. Kílómetragjald var kynnt til sögunnar í upphafi þessa árs og kom í staðinn fyrir skatta á eldsneyti.
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, kynnti nýtt fjárlagafrumvarp og er stefnt er að því að ná fimm milljarða afgangi og skila hallalausum fjárlögum í fyrsta sinn síðan árið 2019. Meðal þess sem fram kemur í nýju frumvarpi er hækkun kílólmetragjaldsins.
Tekjur af ökutækjum og eldsneyti á árinu 2027 séu áætlaðar um 89 milljarða króna
Þá verður lagt til að bifreiðagjald hækki um 5,2 prósent, eða því sem nemur verðbólgu. Segir í fjárlagafrumvarpinu að tekjur af ökutækjum og eldsneyti á árinu 2027 séu áætlaðar um 89 milljarða króna eða 1,6 prósent af vergri landsframleiðslu.
Í kynningunni kom enn fremur fram að tækniframfarir og hröð orkuskipti hafa kallað á nýja nálgun í skattlagningu ökutækja og eldsneytis. Með upptöku kílómetragjalds og afnámi bensín- og olíugjalda í ársbyrjun var tekið upp sanngjarnara kerfi þar sem greiðslur vegna aksturs eru tengdar notkun á vegakerfinu.
Kílómetragjald hækki um 4 milljarða króna
Frumvarpið gerir ráð fyrir að kílómetragjald hækki um 4 milljarða króna umfram verðlagsuppfærslu en undanfarin ár hafa stjórnvöld leitast við að styrkja tekjustofna af ökutækjum og gegnir kílómetragjaldið þar lykilhlutverki.
Fjármálaráðherra segir þetta í samræmi við langtímastefnu sem þessi ríkisstjórn tók yfir og hefur haldið sig við um að styrkja fjárhagslegar stoðir undir fjárfestingar í samgöngum. Við höfum stigið mjög stórt skref í að auka þær fjárfestingar en þær þarf auðvitað að fjármagna,“ segir Daði.








