Nýr Xpeng X9 var frumsýndur hjá bílaumboðinu Unu á dögunum. Bíllinn er sjö sæta og fjórhjóladrifinn, fullkominn fjölskyldubíll. Hann er einnig hannaður samkvæmt 5 stjörnu öryggisstöðlum E-NCAP.
Xpeng X9 er með allt að 580 km drægni samkvæmt WTLP-staðlinum. Rafmótorinn er öflugur og framleiðir 496 hestöfl. Bíllinn nær hleðslu úr 10% og í 80% á einungis 12 mínútum.
Fyrsta flokks farþegarými tekur á móti farþegum en nudd, kæling og hiti er í sætum, sem og stór afþreyingaskjár með aðgang að helstu streymisveitum. Það má einnig finna öflugt aksturs aðstoðarkerfi, sem tryggir öruggar ferðir, og snjöll bílastæðaaðstoð, sem hjálpar ökumanni að leggja í stæði. Útlits hönnun bílsins minnir einnig á geimskip, auk þess endurspegla litirnir himingeiminn.
Í bílnum er sveigjanlegt og fjölhæft innanrými og einfalt er að stækka geymslupláss með einni snertingu. Farangursrými er 721 lítrar en fer upp í 2.554 lítra með aftursæti niðurfelld. Xpeng var stofnað árið 2014 en fyrstu bílarnir voru kynntir hér á landi í september 2024.
Nýr sjö sæta Xpeng X9
Lestími: < 1 mín







