Vaxandi höfrungahlaup gjaldtöku á bílastæðum

Lestími: < 1 mín

FÍB hefur margsinnis bent á hvernig gjaldtaka á bílastæðum einkaaðila í þéttbýli getur leitt til svokallaðs höfrungahlaups. Það gerist þegar gjaldtaka á einu bílastæði skapar ásókn í gjaldfrjáls bílastæði í næsta nágrenni, sem síðan leiðir til þess að þau gjaldstæði taka upp gjaldtöku til að verjast ásókninni.

Á miðju ári 2025 var gjaldskylda á 25 bílastæðum einkaaðila í þéttbýli hér á landi. Í maí síðastliðnum var gjaldskylda komin á 40 stæðum. Í september var gjaldskylda komin á hjá 47 einkaaðilum í þéttbýli.

Þetta er nánast tvöföldun á einu ári og sýnir höfrungahlaupið svart á hvítu. Bílastæðin eru fleiri en talan gefur til kynna, því Háskóli Ísland er til dæmis talinn sem einn aðili. Á vegum HÍ er rukkað inn á 10 aðskildum bílastæðum.

Engin þörf fyrir gjaldtökuna

Á mörgum af þessum stöðum er engin þörf fyrir gjaldtöku til að skammta afnot af takmörkuðu framboði bílastæða, líkt og t.d. í miðborg Reykjavíkur. Tilgangurinn er sá eini að hafa tekjur af þeim. Afleiðingin verður höfrungahlaupið – aukin ásókn í næstu gjaldfrjálsu bílastæði og umráðamenn þeirra neyðast þá til að hefja gjaldtöku líka.

Fyrirtækið MyParking er umsvifamest á þessum vettvangi, hefur 28 bílastæði í þéttbýli á sínum snærum og 31 á landsbyggðinni. Sölumenn þess ganga á milli eigenda og umráðamanna bílastæða og bjóða ókeypis uppsetningu á gjaldtökubúnaði og fría innheimtu hjá Parka, sem er í eigu sömu aðila.

Deila grein: