Ný kynslóð af Hyundai Tucson býður upp á skemmtilega tækni

Lestími: < 1 mín


Hyundai afhjúpaði opinberlega á dögunum næstu kynslóð Tucson á kynningarviðburði í Suður-Kóreu. Helsta breytingin er að bíllinn verður aðeins stærri auk þess verður útlitið kassalagðra.

Bílaframleiðandinn hefur tilkynnt að Tucson mun fá nýjan tæknilegan búnað, en það sem vekur helst athygli er bakkaðstoð með minni (e. Memory reversing assist). Eins og nafnið gefur til kynna rekur kerfið slóð bílsins sjálfkrafa aftur á bak og sér um stýringuna, sem hjálpar ökumanni að leggja og bakka í stæði. Þessi tækni er mikill kostur þegar kemur að þröngum svæðum.

Fyrsti jepplingur Hyundai sem skartar nýja Pleos Connect stýrikerfinu

Á kynningunni var einnig lögð áhersla á fleiri tæknibúnaði sem má búast við í nýja Tucson. Þar má nefna 360 gráður myndavélakerfi sem sýnir veginn undir bílnum eins og hann gegnsær, tæknibúnaður sem tryggir að hurðin aflæsist alltaf eftir árekstur, og kerfi sem hemlar sjálfkrafa ef stigið er óvart á inngjöfina í staðin fyrir bremsuna. Tucson verður einnig fyrsti jepplingur Hyundai sem skartar nýja Pleos Connect stýrikerfinu, en þar er innbyggður gervigreindar aðstoðarmaður sem kallast Gleo AI.

Samkvæmt heimildum er nýi Tucson væntanlegur á evrópskan markað árið 2027. Ekki er vitað hvenær hann kemur á íslenskan markað. 

Deila grein: