Brimborg mun fljótlega frumsýna glænýjan Mazda CX-6e. Þetta er rúmgóður og vel búinn rafbíll þar sem sportleg hönnun og notendavæn tækni mætast.
Rafhlaðan sem kemur með bílnum er 78 kWh og færir bílnum allt að 484 km drægni samkvæmt WLTP staðlinum. Rafmótorinn framleiðir 258 hestöfl og er hann 7,9 sekúndur frá kyrrstöðu í hundrað. Hámarkshraði bílsins er 185 km/klst.
Mazda CX-6e hefur nútímalega og sportlega hönnun, en samt heldur hinu klassíska ,,Mazda útliti”. Mazda CX-6e verður fáanlegur í Takumi og Takumi Plus útfærslum.
Mazda CX-6e býður upp á mjög stóran 26 tommu 5K snertiskjá, framrúðuskjá, 360° myndavél og háþróað öryggiskerfi. Í Takumi Plus útfærslunni bætast meðal annars við stafrænir hliðarspeglar og stafrænn baksýnisspegill. Farangursrýmið er 468 lítrar, auk 80 lítra geymslurýmis að framan, og dráttargetan er allt að 1.500 kg.
Nýr Mazda CX-6e er væntanlegur til Íslands
Lestími: < 1 mín







