Margir ökumenn og íbúar á Hornafirði ráku upp stór augu í byrjun mánaðarins þegar þeir fengu svimandi háa reikninga í heimabanka sína vegna nýja hringvegarins yfir Hornafjarðarfljót. Upphæðirnar hlupu á tugum eða jafnvel hundruðum þúsunda króna hjá þeim sem fara daglega um veginn.
Í ljós kom að um var að ræða tæknileg mistök hjá Vegagerðinni við fyrstu útsendingu reikninga eftir að sjálfvirk gjaldtaka hófst á leiðinni. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að upp hafi komið villa. Þetta sé í fyrsta skipti sem rukkanir hafi verið keyrðar út og unnið sé að yfirferð. Nýjar færslur verði gerðar á mánudaginn. Fólk geti sent spurningar á spolur@vegagerdin.is ef þarf.
Burt séð frá öllum mistökum sé gjaldtakan almennt mikil
Laufey Guðmundsdóttir á Höfn rekur fyrirtæki sem sér um skólaakstur fyrir sveitarfélagið. „Ég var komin með í fyrirtækjabankann 494 þúsund og fjögur hundruð krónur fyrir að mér sýnist vera skólabílarnir. Þetta eru sex reikningar 82.400 hver. Núna í morgun var búið að taka út kröfurnar á fyrirtækjabílana. Eftir standa einkabílarnir ennþá með rukkanir fyrir ágáustmánuð segir Laufey í samtali við FÍB-fréttir. Laufey segir þó að burt séð frá öllum mistökum sé gjaldtakan almennt mikil.
„Fjölskylda sem býr hinum megin þrjá kílómetra vestan við fljót borgar þrjú þúsund krónur á dag fyrir að koma barninu sínu í leikskólann,“ segir Laufey.
„Ef hún þarf að fara tvær ferðir þá vitum við hvernig þetta er allt saman. Ef þú ætlar til tannlæknis, leikskóla, verslun, þá borgar þú fimmtán hundruð krónur til að komast vestur yfir brú og fimmtán hundruð krónur til baka. Þetta er ansi vel í lagt vil ég segja.“
Bæjarstjórn Hornafjarðar gerir athugasemd við vegjaldið
Þess má geta að bæjarstjórn Hornafjarðar fundaði með þingmönnum í síðustu viku þar sem mörg hagmunarmál voru til umræðu, meðal annars samgöngur. Á vef svaitarfélagsins kemur fram að nýr vegur yfir Hornafjörð er mikið framfaraskref sem þéttir byggðarlagið og stækkar vinnusóknarsvæði Hafnar. Gerðar voru athugasemdir við fyrirhugað veggjald, meðal annars að það verði þrefalt hærra en yfir Ölfusárbrú og kallað eftir gagngerri endurskoðun á afsláttarkerfi veggjalda.







