Haustið er gengið í garð og vonskuveður í kortunum. Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast vel með upplýsingum um færð og veður áUmferðin.is, vera búnir eftir aðstæðum og aka með gát. Ferðaþjónustunni er bent á að biðja sína viðskiptavini að fylgjast vel með veðurspám og láta þá vita af því að á Umferdin.is eru upplýsingar á ensku og pólsku.
Veðurviðvaranir í kortunum
Veðurstofan hefur gefið úr gular og appelsínugular viðvaranir fyrir miðvikudaginn 14. október vegna óvenju djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið. Búast má við hvassviðri og úrkomu og líkur eru taldar á að veðrið hafi áhrif á samgöngur. Upplýsingar um veðrið má ávallt finna á vedur.is.
Vegagerðin hvetur ökumenn til að fylgjast vel með færð og veðurspám áður en lagt er af stað, sérstaklega ef ferðalög liggja yfir fjallvegi en e.t.v. þarf að loka þeim með stuttum fyrirvara. Mikilvægt er að gera ráðstafanir eins og að hafa vetrardekk í lagi, auk þess að sýna sérstaka aðgát á leiðum sem liggja um heiðar þar sem veður og færð geta breyst hratt.






