Undirbúningur hafinn fyrir einn stærsta áfanga við byggingu nýrrar Ölfusárbrúar

Lestími: < 1 mín

Undirbúningur fyrir einn stærsta áfanga við byggingu nýrrar Ölfusárbrúar stendur nú yfir. Á næstu dögum verður 330 metra langt og um 2.000 tonna þungt brúargólf dregið frá austurbakka Ölfusár yfir á vestari bakkann. Verkið er vandasamt og gert er ráð fyrir að það taki um tíu daga að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Undanfarið hefur verið unnið að því að ljúka samsetningu stálgrindar brúarinnar og undirbúa flutning hennar yfir ána. Búið er að koma fyrir lögnum í brúargólfinu, meðal annars fyrir heitt og kalt vatn, háspennu og fjarskipti.

Brúargólfið færist áfram í litlum skrefum

Við færsluna verða notaðir öflugir vökvadrifnir tjakkar sem draga brúargólfið áfram eftir sérstökum dráttarlegum. Brúargólfið hvílir á púðum sem renna eftir sléttum stálplötum og koma í veg fyrir skemmdir á yfirborði stálbitanna.

Tjakkarnir draga brúargólfið áfram um hálfan metra í einu og er áætlað að hægt verði að færa það um tíu metra á klukkustund við bestu aðstæður.

Til að styðja við brúargólfið á meðan það er dregið yfir ána hefur verið komið fyrir stóru bráðabirgðamastri ofan á því. Frá mastrinu liggja stálkaplar sem halda uppi fremri enda brúargólfsins meðan á færslunni stendur.

Vandasamt verk sem krefst mikils undirbúnings

Færsla svo stórs og þungs mannvirkis er flókin framkvæmd sem krefst nákvæmrar skipulagningar og mikilla öryggisráðstafana. Verktakinn hefur undirbúið verkið í samráði við viðbragðsaðila og verður framkvæmdasvæðið lokað óviðkomandi á meðan brúargólfið er dregið yfir ána. Gert er ráð fyrir að færslan taki átta til tólf daga, gangi allt samkvæmt áætlun.

Deila grein: