Suð­ur­lands­vegi lokað við Rauða­vatn í kvöld

Lestími: < 1 mín

Kafla af Suðurlandsvegi verður lokað í kvöld, frá klukkan átta til miðnættis. Þetta kemur fram á síðu Vegagerðarinnar.

Stefnt er að malbiksviðgerðum á Suðurlandsvegi við Rauðavatn. Veginum verður lokað á milli tveggja hringtorga, frá hringtorginu þar sem Suðurlandsvegur og Breiðholtsbraut mætast að hringtorginu sem tengir Suðurlandsveg við Norðlingavað.

Hjáleið verður um Norðlingabraut.

Deila grein: