Vörumerkið Lexus er eflaust ekki oft tengt við pallbíla, en margir hafa sennilega velt því fyrir sér hvernig slíkur bíll myndi líta út. Hönnuðurinn Lukemadavids er einn þeirra sem vildi sjá þessa hugmynd verða að veruleika. Í samstarfi með Meso Customs, sem sérhæfir sig í breytingum, gerðu þeir þennan draum að veruleika.
Lúxus pallbíll sem er byggður á Toyota Tacoma grunni
Bíllinn ber nafnið TX1 og er þetta lúxus pallbíll sem er byggður á Toyota Tacoma grunni. Toyota Tundra kom einnig til greina en það var ákveðið að velja frekar Tacoma vegna þess að hlutföllin passa betur við Lexus GX 550. Það var samtvinnað fram- og afturendan frá Tacoma og grillinu, framljósum og vélarhlífinni frá GX 550. Framstuðarinn kemur einnig frá GX 550 en hann þurfti að fara í gegnum breytingar til þess að passa.
Þessi bíll er ekki bara glæsilegur í útliti heldur einnig hæfur torfæruhæfur. Hann er búinn King Off-Road Racing dempurum, efri spyrnum frá 74 Weld og fjöðrunarkerfi sem er sérstaklega hannað til að bæta aksturinn í grófu landslagi. Undir vélarhlífinni er 2,4 lítra, fjögurra strokka túrbóvél.
Einstakur hugmyndabíll og er ekki ætlaður til fjöldaframleiðslu
Samkvæmt Meso Customs er TX1 aðeins hugsaður sem einstakur hugmyndabíll og er ekki ætlaður til fjöldaframleiðslu. Bíllinn hins vegar sannar að Lexus pallbíll gæti litið vel út, en aðal vangavelturnar yrðu því hvaða markhópi hann myndi þjóna








