Könnun FÍB hjá 10 flugstöðvum í Evrópu sýnir að stuttur „sleppitími” og hátt refsigjald í brottfararrennunni í Keflavík sker sig úr fyrir ósanngirni og okur.
Ef bíll stoppar lengur en 5 mínútur við að skila af sér farþegum og farangri í rennunni við flugstöðina í Keflavík innheimtir Isavia 500 krónur fyrir hverja mínútu umfram það. Engin af flugstöðvunum 10 sem FÍB athugaði sýnir sama fantaskap. Aðeins í Zürich eru fyrstu 5 mínúturnar gjaldfrjálsar, en eftir það eru aðeins rukkaðar 145 krónur á mínútu fyrir umframdvöl.
Lipurð, skilningur og fleiri mínútur
Allar hinar flugstöðvarnar sýna meiri lipurð og skilning gagnvart fólki sem er að mæta í flug. Oftast eru gefnar 10 mínútur til að afferma og kveðja áður en farið er að rukka fyrir lengri viðveru. Ekki er innheimt fyrir hverja mínútu, heldur fyrir byrjaðan tímaramma, ýmist 5, 15 eða 20 mínútur. Gjaldið er hóflegt; við flugstöðina í Frankfurt er það 500 krónur fyrir næstu 10 mínútur á eftir fyrstu fríu 10 mínútunum. Í Osló eru fyrstu 7 mínúturnar ókeypis og síðan innheimtar 1.000 krónur fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur eftir það. Í Helsinki eru gefnar 8 fríar mínútur og kannanir sýna að 98% bíla nægja 8 mínúturnar. Ef farið er yfir þann tíma rukkar flugstöðin 700 krónur fyrir hverjar byrjaðar 5 mínútur.
Við London Heathrow flugvöllinn þarf að borga 1.200 krónur fyrir að keyra að flugstöðinni með farþega. Engin tímamörk eru á hversu lengi má stoppa, en árvökulir starfsmenn fylgjast með því að fólk sé ekki að hangsa.
Á Gatwick flugvelli í London er svipað fyrirkomulag, þar kostar 1.600 kr fyrir að keyra að flugstöðinni og ef stoppið fer yfir 10 mínútur þarf að borga 160 krónur per mínútu.
Við flugstöðina í Brussel má stoppa frítt í 10 mínútur, en ef farið er yfir þann tíma þarf að borga 1.700 krónur plús 420 krónur fyrir hverja mínútu umfram þessar tíu.
Við flugvellina í Kaupmannahöfn, Genf og Amsterdam er einfaldlega ekki reynt að krefjast greiðslu fyrir að skutla fólki í flug. Bílstjórnar eru einfaldlega beðnir um að vera ekkert að hangsa og starfsfólk stjaka við ef með þarf.

Gremjan yfir rennuráninu
Óhæfilega stuttur tími og hátt mínútugjald í Keflavík er aðeins önnur hliðin á gremjunni gagnvart aðferðum Isavia. Tiltölulega fá bílastæði eru í rennunni og lenda bílstjórar í því að keyra inn í rennuna og komast síðan ekki að til að hleypa farþegum út. Á meðan tifar klukkan og fyrr en varir detta fimm hundruð krónurnar á mínútu fresti inn á reikninginn hjá Isavia.
Vissulega býður Isavia bílstjórum að stoppa án endurgjalds í allt að 15 mínútur á P1 stæðinu fyrir framan flugstöðina. Þar er hins vegar frekar snúið fyrir marga að athafna sig, því einatt eru stæðin þar full þarf þá að stoppa í akveginum. Fæstir víkja nógu vel til að aðrir komist framhjá og því verða til stíflur þar sem enginn kemst áfram.
Ef Isavia væri annt um viðskiptavini sína, þá myndi fyrirtækið stækka sleppirennuna á kostnað P1 stæðisins og lengja gjaldfrjálsa tímann í 8-10 mínútur.








