Eldsneytisverð vestanhafs lækkar en slær samt fjögurra ára met. Jákvæð teikn eru á lofti fyrir bandaríska ökumenn en eldsneytisverð hefur lækkað nokkuð vestanhafs síðustu daga. Samkvæmt nýjum gögnum frá AAA systursamtökum FÍB í Bandaríkjunum er meðalverð á einu galloni (0.3785 lítrar) af venjulegu bensíni nú 4,42 Bandaríkjadalir, USD (546 íslenskar krónur, ISK), sem er 12 senta (15 ISK) lækkun á milli vikna.

Þrátt fyrir þessa tímabundnu hvíld fyrir budduna er bensínverðið það hæsta sem sést hefur í fjögur ár í Bandaríkjunum. Verðið rauk upp fyrr í vor í kjölfar vaxandi spennu og stríðsástands í Miðausturlöndum með alvarlegum áhrifum á olíuflutninga um Hormússund. Miklar sveiflur hafa verið á heimsmarkaðsverði olíu og það hefur hæst farið í yfir 120 USD á tunnu bæði á Bandaríkjamarkaði (WTI) og Evrópumarkaði (Brent). Hráolíuverðið, þegar þetta er ritað, er um 92 USD á tunnu á Brent markaðnum og tæplega 88 USD á WTI markaðnum.
Að sögn sérfræðinga AAA má rekja lækkunina núna til lækkandi hráolíuverðs á heimsmarkaði sem aftur tengist fréttum um mögulegan samning um frið í Íran. Staðan er afar viðkvæm því ef samningar nást ekki er hætta á að olíuverð rjúki upp á ný. Nú er stutt í að ferðalög sumarsins bresti á í Bandaríkjunum sem venjulega eykur eftirspurn og heldur bensínverði háu.
Eins og áður er gríðarlegur munur á eldsneytisverði eftir fylkjum. Dýrastur er dropinn í Kaliforníu 6,07 dalir (750 ISK) á gallon og fast á hæla fylgja Washington ($5,74) og Hawaii ($5,65). Ódýrasta bensínið er í Indiana eða 3,81 dalir á gallon, en þar á eftir koma Texas ($3,92) og Georgía ($3,93).







