Kílóvattsstundin stendur í 41 senti í Bandaríkjunum sem gerir um 51 íslenska krónu (ISK). Verð á hraðhleðslu hér á landi er 60 til 65 krónur á kWh.
Á meðan eldsneytismarkaðurinn sveiflast til og frá vegna óróa á heimsvísu, ríkir stöðugleiki í verðlagningu á rafmagni fyrir rafbílaeigendur í Bandaríkjunum. Samkvæmt nýjustu verðlagsuppfærslu AAA (systurfélag FÍB í Bandaríkjunum) stendur landsmeðaltalið á opinberum hleðslustöðvum í stað á milli vikna og er 41 sent (USD) á hverja kílóvattsstund (kWh).
Bifreiðaeigendafélagið AAA vaktar nú orkuverð á hleðslustöðvum kerfisbundið til að þjónusta vaxandi hóp rafbílaeigenda. Þótt landsmeðaltalið sé stöðugt, sýna gögnin að kostnaðurinn við að hlaða rafbílinn á ferðalögum er mjög mismunandi eftir því hvar ekið er um landið.
Raforkuverð eftir fylkjum
Dýrust er hleðslan í Vestur-Virginíu en þar kostar kílóvattsstundin að meðaltali 52 sent (65 ISK) íslenskar krónur. Þar á eftir koma Hawaii (51 sent), Alaska (47 sent), Louisiana (46 sent) og Kalifornía (46 sent).
Kansas býður upp á ódýrustu hleðsluna í öllum Bandaríkjunum, eða 29 sent á hverja kílóvattsstund. Missouri fylgir fast á eftir með 32 sent þá Maryland og Utah sem bæði eru með 33 sent á kílóvattsstundina.
AAA bendir rafbílaeigendum á að nota TripTik ferðaskipuleggjarann þeirra til þess að finna og bera saman nákvæm eldsneytis- og hleðslustöðvaverð meðfram þeirri leið sem ekin er hverju sinni.







