Svokölluð TACO-viðskipti (skammstöfun fyrir Trump Always Chickens Out) hafa verið ríkjandi afl á mörkuðum á öðru kjörtímabili Trumps Svokölluð TACO-viðskipti (skammstöfun fyrir Trump Always Chickens Out) hafa verið ríkjandi afl á mörkuðum á öðru kjörtímabili Trumps

Olíuverð lækkar og hlutabréf á uppleið eftir að Trump hættir við árásir á Íran

Svokölluð TACO-viðskipti (skammstöfun fyrir Trump Always Chickens Out) hafa verið ríkjandi afl á mörkuðum á öðru kjörtímabili Trumps
Lestími: < 1 mín

Hlutabréfamarkaðir vestanhafs og víða um heim hækkuðu í dag. Hækkunin tengist fréttum um að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi ákveðið að hætta við fyrirhugaðar hernaðaraðgerðir gegn Íran. Ákvörðunin virðist hafa róað fjárfesta en stigvaxandi stríðsátök í Miðausturlöndum hefur skapað mikla óvissu á mörkuðum síðustu daga.

Helstu hlutabréfavísitölur á Wall Street, þar á meðal S&P 500, Dow Jones og Nasdaq, sýndu allar rækilega grænar tölur fljótlega eftir að markaðir opnuðu. Þessi viðsnúningur kemur í kjölfar mikils flökts og lækkana fyrr í vikunni þegar spenna á milli ríkjanna tveggja virtist vera að ná suðupunkti.

Léttir á markaði og lækkun á olíuverði

Auk þess sem hlutabréfaverð rauk upp, hafði yfirlýsing forsetans snögg áhrif á hrávörumarkaði. Olíuverð, sem hafði hækkað mikið lækkaði á nýjan leik um leið og dró úr hættu á hernaðarátökum.

Sérfræðingar á fjármálamarkaði segja að markaðurinn hafi andað léttar. Sérfræðingar á markaði óttist og vilji forðast sviðsmyndir þar sem olíukreppa og stríðsástand knýi áfram verðbólgu og dragi úr hagvexti á heimsvísu.

Skilaboð Trump breyttu stöðunni

Spenna á milli Bandaríkjanna og Írans hafði stigmagnast hratt á síðustu dögum og búist var við harkalegum gagnárásum af hálfu Bandaríkjahers. Trump tilkynnti hins vegar að hann hefði ákveðið að láta staðar numið og fresta frekari hernaðaraðgerðum. Hann sagðist fremur vilja leita annarra leiða til þess að takast á við stjórnvöld í Teheran.

Þó að ástandið á Miðausturlöndum sé enn eldfimt og langt í frá stöðugt, virðast þessi sinnaskipti forsetans duga til þess að fjárfestar og markaðsaðilar einbeiti sér að mælanlegum þáttum í hagkerfinu s.s. afkomu fyrirtækja frekar en heimspólitískri áhættu.

Deila grein: