Heimsmarkaðsverð á hráolíu (Brent) hækkaði um tæp 10% í gær og hefur hækkað áfram í dag. Heimsmarkaðsverðið er það hæsta í fjórar vikur. Ástæðan er stigmagnandi spenna og loftárásir á milli Bandaríkjanna og Írans við hið mikilvæga Hormússund. Átökin stefna nýlegu vopnahléssamkomulagi ríkjanna í verulega tvísýnu.
Verð á Brent-hráolíu er þegar þetta er ritað um 85 Bandaríkjadalir á tunnu. Þetta er hæsta verð sem mælst hefur síðan ríkin tvö undirrituðu bráðabirgðasamkomulag um vopnahlé þann 17. júní sl.
Bandaríkjaher gerði loftárásir á skotmörk í Íran þriðju nóttina í röð. Árásirnar voru gerðar í kjölfar þess að Íranar hæfðu tvö olíuskip frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum með stýriflaugum á mánudag, með þeim afleiðingum að einn skipverji lést og átta særðust.
Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir á mánudag að Bandaríkin myndu setja hafnbann á íranskar hafnir. Þá vakti hann ólgu á mörkuðum með hótunum um að innheimta 20% gjald eða verndartoll á flutningaskip sem fara um Hormússund gegn vernd Bandaríkjahers.
Hormússundið er ein mikilvægasta flutningaleið heims en um það fer um fimmtungur allrar olíu og gass á heimsvísu. Ótti við að flutningar tefjist eða stöðvist alveg hefur þegar dregið úr skipaumferð um sundið og valdið titringi á fjármálamörkuðum víða um heim.







