Hörð gagnrýni hefur verið sett fram á íslensku olíufélögin um fákeppni og óeðlilega álagningu á eldsneyti. Samkeppniseftirlitið birti þann 2. júlí sl. umræðuskjal um þróun á íslenskum eldsneytismarkaði og áhrif breytinga á opinberum gjöldum á verðlagningu. Greiningin gaf sterkar vísbendingar um hækkandi álagningu á bensín og dísilolíu og ríka fylgni eldsneytisverðs við hækkun á heimsmarkaðsverði en síður við lækkun.
FÍB birti úttekt þann 1. júlí sl. sem byggði á opinberum hagtölum um heildarinnflutning á 95 oktan bensíni til landsins og hvað olíufélögin borguðu í tolli fyrir bensínið með flutningi (CIF). Úttektin sýndi 20 prósent hækkun álagningar í ár samanborið við álagninguna 2025. Við frekari greiningu fyrir RÚV mátti sjá sláandi aukningu álagningar á hvern bensínlítra allt frá árinu 2021. Samanburðurinn var á föstu verðlagi og sýndi yfir 70% hækkun álagningar olíufélaganna á hvern bensínlítra frá 2021 til maí 2026.
Hagar birtu afkomutölur fyrir mars til maí í ár sem sýndu mjög mikinn afkomubata fyrirtækisins. Hagnaðurinn var langt umfram væntingar sérstaklega af sölu eldsneytis hjá ÓB og Olís. Þessi aukna arðsemi kom á sama tíma og heimsmarkaðsverð á olíu rauk upp vegna Íran stríðsins. Sala á eldsneyti hjá Högum dróst saman um 3,5% á milli ára en samt batnaði afkoman.
Samráð um andmæli
Eigendur olíufélaganna siguðu Samtökum atvinnulífsins og Samtökum verslunar og þjónustu á fjölmiðla til að verja félögin sameiginlega. Það er ekki samtaka fyrirtækja í samkeppni að verja verðlagningu. Væntanlega mun Samkeppniseftirlitið skoða þessa aðkomu samtakanna sérstaklega. Í heilbrigðu samkeppnisumhverfi á hvert olíufélag fyrir sig að setja fram mögulega gagnrýni á umræðuskjal Samkeppniseftirlitsins. Félögin virðist skorta kjark til að svara málefnalegri gagnrýni og kjósa að bregðast við með þögn.
Það er með ólíkindum hve stórtæk olíufélögin hafi verið í álagningu á eldsneyti. Í fákeppnisumhverfi virðast fyrirtæki telja það rétt og eðlilegt að samræma verðlag og auka álagningu. Neytendur þurfa að fá skýr svör varðandi muninn á álagningu hér og erlendis.
Þessi verðstefna á eldsneytismarkaði bitnar ekki bara á viðskiptavinum olíufélaganna heldur samfélaginu öllu. Eldsneytisverð hefur mikil áhrif á verðbólgu. Virðisaukaskattur á eldsneyti var lækkaður tímabundið til að reyna að slá á verðbólgu. Með því að auka álagningu eru olíufélögin að dæla olíu á verðbólgubálið með tilheyrandi afleiðingum fyrir almenning í landinu.

Hormússund aftur lokað
Ólgan á heimsmarkaði hefur aftur stigmagnast með nýjum átökum og endalokum vopnahlés í stríði Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran. Hér heima hafa olíusalar verið að lækka verð á dísilolíu á sama tíma og heimsmarkaðurinn stígur. Nærtækasta skýringin er sú að félögin séu að bregðast við gagnrýni með verðlækkun. Auðvitað gera félögin sér grein fyrir því að þau eru til sérstakrar skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu og geta lent í vandræðum verði endanleg niðurstaða eftirlitsins í samræmi við vísbendingar í umræðuskjalinu.
Verð á eldsneyti
Útsöluverð á 95 oktan bensíni er núna frá 180,30 krónur hjá Costco (fyrir meðlimi) og upp í 228,90 krónur hjá N1. Þarna er verðmunurinn 48,60 krónum á hvern lítra. Næst ódýrasti bensínlítrinn kostar 200,20 krónur hjá Orkunni á stöðvum sem bjóða svokallað lægsta verð Orkunnar. Þetta „lægsta verð“ er 19,90 krónum hærra á lítra.

Útsöluverð á dísilolíu hefur lækkað nokkuð hressilega í þessum mánuði. Costco hefur lækkað verðið mest eða um 18 krónur á lítra frá 219,60 krónum niður í 201,60 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði er 44,30 krónur. Dýrasti dísillítrinn fæst hjá N1og kostar 245,90 krónur. Fyrir bíleiganda t.d. á dísiljeppa þá munar meira en 50 þúsund krónum yfir árið (fer eftir eyðslu) að kaupa dísilolíu þar sem hún er dýrust í samanburði við ódýrasta dropann. Næst ódýrust er dísilolían á völdum stöðvum Orkunnar, þar kostar lítrinn 221,50 krónur sem er 19,90 krónum yfir dísillítranum hjá Costco.
Aukinn verðmunur

Verðmunurinn á milli Costco og ódýrasta verðs Orkunnar hefur aldrei verið meiri en um þessar mundir. Skeljungur móðurfélag Orkunnar sér Costco á Íslandi fyrir eldsneyti. Það er a.m.k. tæplega 20 krónum ódýrara að kaupa bensín og dísilolíu fyrir utan stórmarkað Costco heldur en lágvöruverðsverslun Bónus.







