Skutbílar seljast mun betur í Evrópu heldur en í Bandaríkjunum en af hverju ætli það sé? Það eru ýmsar ástæður fyrir því, sem dæmi má nefna menningarlega þætti, öðruvísi innviði og dýrara eldsneyti.
Skutbílar voru taldir mjög flottir í Bandaríkjunum í kringum sjöunda og áttunda áratuginn en með tímanum breyttist ímyndin í sjálfgefinn fjölskyldubíl þar sem áherslan var á hagkvæmni. Útlit og afköst víktu fyrir þægindum og hagkvæmni. Upp úr níunda áratugnum skorti flesta skutbíla persónuleika.
Í Evrópu var notagildið áfram í fyrirrúmi þegar kom að vinsældum skutbíla en bílaframleiðendur sáu til þess að skutbílar héldu aðdráttarafli sínu. Það var því mikið hugsað út í útlit og aksturseiginleika bílanna. Bílaframleiðendur eins og BMW, Mercedes og Volvo tryggðu þá sérstaklega að skutbílar héldu sínu striki á markaðnum.
Skynsamlegra að framleiða stærri fjölskyldubíla
CAFE-löggjöfin í Bandaríkjunum breytti landslaginu þegar kom að bílaframleiðslu. Löggjöfin skipti ökutækjum í tvo meginflokka: fólksbíla og létta trukka. Það voru ólík eyðslumörk á þessum tveimur flokkum, strangar kröfur voru á fólksbílum á meðan kröfurnar voru vægari á léttum trukkum. Þannig í staðinn fyrir að eyða stórum fjárhæðum í að framleiða þunga skutbíla sem þurftu að vera eyðsluminni þá var skynsamlegra að framleiða stærri fjölskyldubíla (jeppa og pallbíla) sem féllu undir flokkinn ,,léttir trukkar”.
Menningarmunur ökumanna í Evrópu og Bandaríkjunum spilaði líka þátt í þessari þróun. Í Bandaríkjunum fór að myndast meiri áhugi fyrir stórum jeppum og pallbílum. Innviðir, þar á meðal stærri vegir og bílastæði, gátu stutt stærri bifreiðar og skattarnir á eldsneyti voru minni en í Evrópu.
Volvo varð einn af brautryðjendunum
Evrópskir bílaframleiðendur fóru að breyta ástkæra fjölskyldubílnum í hraðskreiða og flotta skutbíla. Volvo varð einn af brautryðjendunum þegar kom að hraðskreiðum skutbílum, en þeir gerðu sérstaka útgáfu af Volvo 850 sem kallaðist T5-R og gáfu bílnum fimm strokka vél með túrbínu sem skilaði 240 hestöflum.
Seinna meir fóru þýsku bílaframleiðendurnir enn lengra. Audi framleiddi RS 6 og RS 5 Avant sem skiluðu 621 og 639 hestöflum. BMW fór enn lengra með M5 Touring sem skilaði 717 hestöflum. Skutbílar hafa nánast alveg sömu eiginleika og sedan nema með stærra geymsluplássi, sem hefur sennilega hjálpað við vinsældirnar í Evrópu.







