Virðisaukaskattshækkun á eldsneyti yfirvofandi

Lestími: 2 mín

Virðisaukaskattur á eldsneyti hækkar aftur 1. september nema Alþingi grípi inn í

Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á bensín og dísilolíu, sem Alþingi samþykkti 29. apríl 2026, fellur úr gildi 31. ágúst. Að óbreyttu hækkar virðisaukaskattur á eldsneyti úr 11% í 24% þann 1. september og eldsneytisverð hækkar samhliða.

Samkeppniseftirlitið fær auknar valdheimildir

Samhliða skattalækkuninni voru samkeppnislögum breytt og Samkeppniseftirlitinu falið að tryggja að lækkunin skilaði sér að fullu til neytenda. Söluaðilum var sérstaklega bannað að hækka eigin álagningu til að taka til sín ávinning af skattalækkuninni. Hins vegar var þeim heimilt að breyta verði vegna sannanlegra breytinga á innkaupsverði eða öðrum kostnaðarþáttum.

Lögin veita Samkeppniseftirlitinu heimild til að leggja stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem brjóta gegn ákvæðunum. Einnig getur ráðherra, að fenginni umsögn eftirlitsins, gripið til tímabundinna aðgerða á borð við hámarksverð eða hámarksálagningu.

Samkeppniseftirlitið hefur ítrekað bent á að samkeppni á eldsneytismarkaði sé veik og vísbendingar séu um fákeppni. Fyrstu niðurstöður gagnaöflunar eftirlitsins benda jafnframt til þess að gagnrýni FÍB, ASÍ og verkalýðsfélaga um aukna álagningu olíufélaga á undanförnum mánuðum kunni að eiga við rök að styðjast. Nánari niðurstöður verða birtar að lokinni frekari skoðun og umsögnum fyrirtækjanna.

Miðað við núverandi verð myndi hækkun virðisaukaskatts hækka bensín- og dísilverð um 11,7%

Möguleg framlenging

Ríkisstjórnin hefur rætt mögulega framlengingu skattalækkunarinnar en engin ákvörðun liggur fyrir. Fjármála- og efnahagsmálaráðherra sagði í ágúst að framhaldið myndi ráðast af þróun olíuverðs. Þar sem Alþingi kemur ekki saman fyrr en 8. september er ljóst að 24% virðisaukaskattur leggst á eldsneyti frá 1. september, þó mögulegt sé að breytingar verði gerðar síðar í mánuðinum.

Verðhækkun

Miðað við núverandi verð myndi hækkun virðisaukaskatts hækka bensín- og dísilverð um 11,7%. Til dæmis myndi bensínlítri hjá N1 hækka úr 234,90 krónum í 262,40 krónur, en hjá Costco úr 191,10 krónum í 213,50 krónur. Dísillítri hjá N1 myndi fara úr 261,90 krónum í 292,60 krónur, en hjá Costco úr 224,30 krónum í 250,60 krónur. Endanlegt verð mun þó áfram ráðast af þróun heimsmarkaðsverðs og álagningu olíufélaganna.

Deila grein: