„Við á Keflavíkurflugvelli (KEF) munum fara yfir ábendingar FÍB og einnig hafa samband við fulltrúa félagsins til að opna á samtal. Varðandi gjaldtöku í rennunni svokölluðu við brottfararinnganginn að flugstöðinni á KEF þá var hún tekin upp fyrir um einu og hálfu ári,“ segir Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia í samtali við visir.is í svari til fréttastofu vegna málsins.
Könnun FÍB hjá 10 flugstöðvum í Evrópu sýnir að stuttur „sleppitími” og hátt refsigjald í brottfararrennunni í Keflavík sker sig úr fyrir ósanngirni og okur. Þetta kom fram á fibfrettir.is í gær
Ef bíll stoppar lengur en 5 mínútur við að skila af sér farþegum og farangri í rennunni við flugstöðina í Keflavík innheimtir Isavia 500 krónur fyrir hverja mínútu umfram það. Engin af flugstöðvunum 10 sem FÍB athugaði sýnir sama fantaskap. Aðeins í Zürich eru fyrstu 5 mínúturnar gjaldfrjálsar, en eftir það eru aðeins rukkaðar 145 krónur á mínútu fyrir umframdvöl.
Athugasemdir Félags íslenskra bifreiðaeigenda verða teknar til skoðunar
Forsvarsmenn Isavia segja að aldrei hafi fleiri stoppað stutt, eða innan við fimm mínútur, í brottfararrennu við Keflavíkurflugvöll eins og eftir að gjaldtaka hófst í rennunni. Hlutfallið sé nú 97 prósent en hafi áður verið áttatíu prósent. Athugasemdir Félags íslenskra bifreiðaeigenda verði þó teknar til skoðunar og samtal opnað við félagið um málið.
Þess má geta að Isavia hefur ekki enn haft samband við FÍB vegna umfjöllunnar um málið.







