Nokkur góð ráð um notkun bílastæða á Keflavíkurflugvelli

Lestími: 3 mín

Þó svo að umsvif flugvallarins hafi margfaldast síðustu áratugi, þá eru enn jafn mörg bílastæði (7 til 8) og á síðustu öld í rennunni við brottför. Til að rennan teppist ekki refsar Isavia bíleigendum með 500 kr. sekt á mínútu ef þeir stoppa þar lengur en 5 mínútur. Þetta skapar mikið stress og kveðjustundin verður endaslepp. Frægt er atriðið úr áramótaskaupinu um ástandið. Isavia segir aftur á móti að 97% bíla stoppi undir 5 mínútum og borgi því enga sekt.

Tveir valkostir eru betri ef bílstjórar vilja ekki taka áhættuna í rennunni. Annar er að fara inn á P1 bílastæðið sem er fyrir framan brottfararinngang. Þar má stoppa gjaldfrjálst í 15 mínútur, sem ætti að nægja flestum til að hleypa út farþegum og farangri og kveðja með virktum. Hinn valkosturinn er P2 bílastæðið komumegin við flugstöðina, sem er einkum ætlað til að sækja fólk úr flugi. Þaðan er litlu lengri gangur inn í flugstöðina en frá P1 stæðinu og þar má stoppa gjaldfrjálst í 30 mínútur.

Gjaldtökugildran á P1 og P2 stæðunum

Fyrir bílstjóra sem eru að skutla eða sækja og vilja ekkert borga Isavia er mikilvægt að fara ekki yfir frítímann. Ef farið er eina mínútu framyfir á P1 eða P2 stæðunum, þá er rukkaður heill klukkutími, 790 kr á P1 og 690 kr. á P2. Eftir stoppað er lengur en þennan fyrsta klukkutíma, þá er sá næsti rukkaður heill, óháð því hvort stoppað er í 1 eða 60 mínútur.

Ekki stoðar að keyra út af P1 eða P2 stæðunum áður en frítímanum lýkur og svo inn aftur. Isavia hefur ráð undir rifi hverju til að tryggja sér bílastæðatekjur. Frítíminn er nefnilega aðeins í boði fyrir hvern bíl einu sinni á sólarhring. Nýr innakstur yrði því rukkaður sem heill klukkutími.  

Lagt á P3 langtímastæðinu

Isavia hvetur til fyrirfram bókunar á á P3 langtímastæðinu. Fullt gjald fyrir einn sólarhring á stæðinu er 2.490 kr en með fyrirfram bókun er oft hægt að þoka gjaldinu niður fyrir 1.800 kr á sólarhring.

Bókunin miðast við þann komu- og brottfarartíma sem valinn er, þó verðið sé reiknað í sólarhringseiningum. Isavia gefur þó allt að 8 tíma svigrúm fyrir og eftir bókaðan tíma, þannig að ef brottför af stæðinu er t.d. bókuð kl. 17.00 er svigrúm til kl. 01.00. Það svigrúm getur komið sér afar vel ef seinkun verður á flugi til landsins.

Hægt er að leggja á P3 stæðinu þó það hafi ekki verið bókað fyrirfram og borga með öppum Autopay, Parka og Easypark eða í greiðsluvél í flugstöðinni. Hins vegar er tekið fullt gjald, 2.490 kr. á sólahring þegar bílastæðið er nýtt með þessum hætti. Þegar sólarhringurinn er liðinn og 16 mínútur til viðbótar, þá er innheimt fyrir næsta heilan sólarhring, óháð því hvenær ekið er út af stæðinu. Af þessu leiðir að nánast alltaf borgar sig að bóka fyrirfram til að fá lægra gjald og meira svigrúm.

Flugstöðin stækkar og beðið eftir bílastæðahúsi

Miðað við íslenskt veðurfar undrast margir hvers vegna Isavia hefur ekki fyrir löngu byggt bílastæðahús við flugstöðina í Keflavík, líkt og þekkist á öllum alþjóðaflugvöllum. Áhersla Isavia hefur hins vegar verið á stækkun flugstöðvarinnar, þó svo að áætlanir um fjölgun tengifarþega til að nýta húsið hafi ekki orðið að veruleika.

Samkvæmt heimildum FÍB áformar Isavia að kanna með byggingu bílastæðahúss eftir tvö ár. Líklegasta staðsetningin er hægra megin við aðkomuna brottfararmegin við flugstöðina og byggð verði göngubrú úr bílastæðahúsinu að flugstöðinni.

Um að gera að hafa samband

Það er um að gera fyrir bíleigendur að hafa samband við bílastæðaþjónustu Isavia ef þeim finnst innheimtukrafa ósanngjörn. Ef hægt er að færa rök fyrir breytingu eða niðurfellingu á kröfu, þá eru meiri líkur en minni á því að þau verði tekin góð og gild. 

Deila grein: