Ný reglugerð um Loftslags- og orkusjóð og breyttar viðmiðunarfjárhæðir

Lestími: < 1 mín

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur undirritað reglugerð sem felur í sér skýrari umgjörð um starfsemi Loftslags- og orkusjóðs og skilvirkara verklag við auglýsingar og úthlutun styrkja úr samkeppnishluta sjóðsins. Samhliða eru gerðar breytingar á viðmiðunarfjárhæðum beinna styrkja sem miða að því að fjármunir sjóðsins nýtist með hagkvæmari hætti en áður og beinist að þeim verkefnum sem skila mestum ávinningi. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.

Frá og með 1. nóvember verður hámarksverð styrkhæfra fólksbíla 8 milljónir króna í stað 10 milljóna og styrkfjárhæð vegna hvers bíls 400 þúsund krónur í stað 500 þúsund króna. Áfram verður veittur stuðningur við orkuskipti sendi-, vöru- og hópferðabíla en slíkir styrkir verða eingöngu veittir lögaðilum og einstaklingum í virkum atvinnurekstri.

Rafbílastyrkir hafa að mestu runnið til tekjuhærri hópa á undanförnum árum. Með lægra hámarksverði styrkhæfra bíla verður fjármunum beint til hópanna sem eru líklegri til þess að kaupa bíla á lægra verðbili og jafnframt stuðlað að fjölgun slíkra bíla á eftirmarkaði. Þessi breyting er í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar um réttlát umskipti.

Í tilkynningunni kemur fram að verðþróun rafbíla hefur verið hagstæð undanfarið ár, bæði vegna þróunar á heimsmarkaði og vegna þess að vörugjöld voru afnumin af nýjum rafbílum samhliða öðrum breytingum á gjaldtöku vegna ökutækja þann 1. janúar 2026. Rafbílar eru því orðnir samkeppnishæfari í innkaupum auk þess að vera ódýrari í rekstri en bensín- og dísilbílar.

Fram kemur í ársskýrslu Loftslags- og orkusjóðs fyrir 2025 að ábatinn af beinum styrkjum til kaupa á fólks- og sendibílum sé í dag umtalsvert minni en af mörgum verkefnum sjóðsins. Er þetta í samræmi við niðurstöður greininga sem unnar hafa verið í ráðuneytinu. Breytingarnar á viðmiðunarfjárhæðum rafbílastyrkja eru gerðar með hliðsjón af þessum breyttu aðstæðum og áherslum ríkisstjórnarinnar á sjálfbæran ríkisrekstur og hagkvæma ráðstöfun opinberra fjármuna.

Reglugerð um Loftslags- og orkusjóð

Deila grein: