Árið 2025 var svokallað semsett hlutfall í lögboðnum ökutækjatryggingum (skyldutryggingum) 91,1% samkvæmt gagnatöflum fjármálaeftirlits Seðlabankans. Samsetta hlutfallið sýnir hvort iðgjöld standi undir tjóna- og rekstrarkostnaði. Ef það er undir 100%, þá er tjóna- og rekstrarkostnaður lægri sem hlutfallinu nemur.
Síðustu fjögur ár hefur samsetta hlutfallið í skyldutryggingum verið vel undir 100%. Afkoman af tryggingastarfseminni er því afar góð og að auki hafa félögin fjármagnstekjur af bótasjóðunum. Þó er ekki lengra síðan en í maí 2025 að hagfræðingur Samtaka fjármálafyrirtækja hélt því fram í fjölmiðlum að afkoma af tryggingum væri lökust á Íslandi af öllum Evrópulöndum.
Áfram halda tryggingafélögin þó að tapa á kaskótryggingum. Í fyrra var samsett hlutfall í kaskótryggingum 113,7%. Iðgjöldin standa ekki undir tjóna- og rekstrarkostnaði og hefur svo verið síðustu fjögur ár. Spyrja má að hvaða leyti þessi taprekstur er borinn uppi af tekjum af þeim tryggingum sem bíleigendur eru skyldugir til að kaupa.
Sjá einnig: 22% hækkun rekstrarkostnaðar í bílatryggingum







