Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á bensín og dísilolíu, sem Alþingi samþykkti 29. apríl í vor, féll úr gildi á miðnætti. Lítrinn hækkaði um allt að 31 krónu þar sem hann var dýrastur fyrir. Skattprósentan hækkaði þá úr 11 prósentum í 24 prósent. Mikil örtröð var við bensínstöðvar höfuðborgarsvæðisins í gærkvöldi.
Þetta kemur sér illa við almenning
,,Það er litlar breytingar á stöðunni á heimsmarkaðsverði og það eru samt ákveðin vonbrigði að stjórnvöld hafi ekki gripið til ráðstafana til að framlengja lækkunina á virðisaukaskattinum á meðan þetta ástand varir. Þetta kemur sér illa við almenning og í ljósi í þeirra tímasögu sem við búum við og verðbólgunnar þá hefði verið æskilegt að sjá viðbrögð frá stjórnvöldum. Auðvitað ræðst verðið alltaf á álagningu líka og gengi íslensku krónunnar gagnvart bandaríkjadal. Við stjórnum ekki heimsmarkaðnum en við höfum kvartað undan því í gegnum tíðina að olíufélögin hafi verið með ansi drjúga álagningu. Það er núna í skoðun hjá Samkeppniseftirlitinu staða þessa markaðar sem veitir þeim ákveðið aðhalt í augnablikinu. Það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr þeirri rannsókn,“ sagði Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, í viðtali í morgunfréttum á RÚV.
Lægsta verð á bensínlítra hækkaði um 23,60 krónur og dísillítrinn um 27,40 krónur, miðað við verð sem var skráð á vefnum GSM bensín í gærkvöldi og í morgun.Hæsta verðið hækkaði öllu meira. Bensínlítrinn hækkaði um 27,50 krónur þar sem hann var dýrastur fyrir og dísillítrinn um 30,60 krónur.
Lægsta verð á bensíni fór úr 210,10 krónum í 224,70 krónur og hæsta verð úr 234,90 krónum í 262,40. Lægsta verðið á dísil fór úr 234,30 krónum í 261,70 og hæsta verðið úr 261,90 í 292,50.
Á síðunni gasvaktin.is, sem sækir verð á eldsneyti hjá flestum olíufélögum, mátti eftir virðisaukaskattslækkunina sjá að verð hefði lækkað eftir virðisaukaskattsbreytinguna um 26 til 27 krónur lítrinn á bensíni og dísil um 30 til 32 krónur. Sú hækkun virðist nú hafa skilað sér til baka. Samkvæmt síðunni er bensínið enn ódýrast hjá Costco, en þar þarf meðlimakort til að versla.







