FÍB fagnar áformum ríkisstjórnarinnar um hóflegri hækkanir opinberra gjalda en boðuð 15,9% hækkun kílómetragjalds gengur þvert gegn markmiðum um lægri verðbólgu og vaxtalækkanir.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra lagði í síðustu viku fyrir ríkisstjórn tillögur um aðgerðir sem ætlað er að styðja við lægri verðbólgu og skapa svigrúm til vaxtalækkana. Meðal þess sem rætt hefur verið er að takmarka hækkanir almennra krónutölugjalda og gjaldskráa ríkisstofnana við 2,5% á næsta ári, í stað 5,2% hækkunar sem áður var gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi.
FÍB telur þessi áform jákvæð en bendir á að í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir 15-16% hækkun kílómetragjalds vegna notkunar ökutækja.
Að mati félagsins er slík hækkun í mikilli mótsögn við boðuð markmið stjórnvalda um hófsemi í opinberum gjaldskrárhækkunum og gæti haft veruleg áhrif á heimili og atvinnulíf.
Það er mikið stílbrot og aðför að neytendum ef hækka á kílómetragjaldið um 15,9% prósent á sama tíma og önnur gjöld eiga að taka mið af 2,5% verðbólgumarkmiði.
FÍB telur að svo mikil hækkun muni auka framfærslukostnað heimila, hækka rekstrarkostnað fyrirtækja og skapa aukinn verðbólguþrýsting. Það er sérstaklega varhugavert að hækka aksturstengd gjöld umfram verðlagsþróun á sama tíma og heimsmarkaðsverð á olíu er í hæstu hæðum og á að mati sérfræðinga ekki eftir að lækka í bráð.
Breytt fyrirkomulag gjaldtöku
FÍB hvetur stjórnvöld til að takmarka hækkun kílómetragjaldsins við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Jafnframt telur félagið tímabært að endurskoða fyrirkomulag gjaldtökunnar þannig að hún taki betur mið af þyngd ökutækja, sliti á vegakerfinu og losun gróðurhúsalofttegunda.
FÍB leggur til að kolefnisgjaldið falli inn í kílómetragjaldið, sem einfaldar innheimtu og dregur úr kostnaði ríkisins.
FÍB gagnrýnir að núverandi kerfi leggur sama gjald á létta og þunga fólksbíla. Það er ósanngjarnt gagnvart neytendum og dregur úr hvötum til umhverfisvænni samgangna. Hvernig er hægt að réttlæta sama kílómetragjald á undir 1.000 kílógramma fólksbíl og tæplega 3.500 kílógramma jeppa? Þetta er misvægi og brot á jafnræði.
Gjaldtakan þarf að endurspegla raunveruleg áhrif notkunar ökutækja á vegakerfið og umhverfið fremur en að leggja sömu byrðar á alla eigendur fólksbíla óháð þyngd og umhverfisáhrifum ökutækja.







