Á þessu ári hafa breskar og bandarískar sendinefndir komið hingað til lands til að kynna sér reynslu af innleiðingu kílómetragjalds hér á landi og afla sér fræðslu um framkvæmd kerfisins. Breska sendinefndin kom hingað sl. vor en fyrirhugað er að kílómetragjald verði tekið upp í Bretlandi fyrir rafmagns- og tengiltvinnbíla á vormánuðum árið 2028. Í sendinefndinni voru sérfræðingar frá breska fjármálaráðuneytinu, samgönguráðuneytinu og tengdum stofnunum.
Nú í vikunni kom hingað til lands bandarísk sendinefnd og fundaði bæði með sérfræðingum fjármála- og efnahagsráðuneytinu, fulltrúum hagsmunaaðila og FÍB. Þar var farið yfir tæknilega þætti, svo sem skráningu aksturs, notendaupplifun og eftirlit með akstursmælum.
Fundað með sérfræðingum hjá hinu opinbera og fulltrúum hagsmunaaðila
Sendinefndin fundaði einnig bæði með sérfræðingum hjá hinu opinbera og fulltrúum hagsmunaaðila. Heimsóknin hófst með fundi í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, þar sem ráðuneytið kynnti meðal annars uppbyggingu, innleiðingu og rekstur íslenska kerfisins. Þá heimsótti nefndin Skattinn og Samgöngustofu þar sem farið var yfir tæknilega þætti, svo sem skráningu aksturs, notendaupplifun og eftirlit með akstursmælum.
Sendinefndin hitti einnig fulltrúa hagsmunasamtaka, þar á meðal frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, Bílgreinasambandinu, Samtökum verslunar þjónustu, Landssamband vörubílastjóra, og fulltrúum frá bílaleigunefnd Samtaka ferðaþjónustunnar. Þar var meðal annars rætt um reynslu notenda, rekstrarumhverfi og áhrif kerfisins á markaðinn.
Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær innleiðingu á almennu eða skyldubundnu kílómetragjaldi á landsvísu í Bandaríkjunum verði tekin upp. Málið er enn á tilrauna- og umræðustigi bæði hjá alríkisstjórninni og stökum fylkjum.







