Hellisheiði lokuð til vesturs í sjö klukkustundir í dag

Lestími: < 1 mín

Hellisheiði verður lokuð fyrir umferð í sjö klukkustundir í dag, 9. október, vegna malbikunarviðgerða.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni verður heiðinni lokað klukkan 9 og gert er ráð fyrir að framkvæmdir standi til klukkan 16.

Lokunin nær til umferðar til vesturs í átt til Reykjavíkur og verður hjáleið um Þrengslaveg. Vegfarendur eru beðnir að aka varlega og virða merkingar.

Í kvöld frá klukkan 20 til klukkan 16 á morgun verða framkvæmdir á Reykjanesbraut milli Kaplakrika og Kauptúns. Lokað verður fyrir vinstri beygju á gatnamótum við Álftanesveg. Umferðin á Reykjanesbraut ekur meðfram vinnusvæðinu samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.

Deila grein: