Þegar rafbíla æðið hófst í kringum 2020 virtist BMW vera íhaldssamt þegar kom að þróun rafbíla. Nú er ljóst að fyrirtækið tók sér tíma við þróunarferlið. Þessi langtíma hugsun hefur gengið vel hjá BMW hingað til. iX3 hefur unnið til margra titla á þessu ári, þar á meðal ,,bíll ársins í heiminum”. Meiri eftirspurn er fyrir bílnum en bílaframleiðandinn átti von á.
Eftir því sem BMW framleiðir fleiri rafbíla bíla ætti hagkvæmni stærðar (e. economies of scale) að vinna í haginn fyrir fyrirtækið, og gera því kleift að framleiða rafbíla á enn samkeppnishæfara verði. Fyrirtækið er einnig stanslaust að finna aðrar leiðir til að halda rafbílum sínum á hagstæðara verði.
Taka höndum saman við Samsung og LG Energy Solution
Bílaframleiðandinn vill bæta rafhlöðu aðfangakeðjuna (e. supply chain) og einblína á stefnu sem felur í sér staðbundna framleiðslu. Það eru tveir kostir við þessa nálgun. Í fyrsta lagi styttir þetta flutninga vegalengdir, og kemur í veg fyrir aukinn flutningskostnað. Í öðrulagi eykur það afhendingaröryggi, sem þýðir að skortur í framleiðslu ætti að vera minna vandamál ef eftirspurn eykst. Í Evrópu hefur BMW tekið höndum saman við Samsung SDI og í Bandaríkjunum munu þeir vinna með LG Energy Solution.
Bílaframleiðandinn opnar nýjar verksmiðjur
BMW hefur opnað rafhlöðuverksmiðju fyrir bandarískan markað í Woodruff í Suður-Karólínu. Það er hins vegar ekki eina verksmiðjan í Norður-Ameríku, en það verður einnig verksmiðja í San Luis Potosi í Mexikó. Fyrir Evrópskan markað verður verksmiðja í Irlbach-Strasskirchen í Þýskalandi, ásamt gervigreindar stýrðri verksmiðju í Debrecen í Ungverjalandi. Hvað Asíu varðar verður það Shenyang-verksmiðjan í Kína.
Bílaframleiðendur keppast um að auka framleiðslu rafknúinna bíla en á sama tíma þurfa að halda verðinu samkeppnishæfu.






