Umferðin eykst á Hringveginum

Lestími: < 1 mín

Umferðin á Hringveginum í september jókst um 2,5 prósent miðað við sama mánuð í fyrra. Ekki hefur verið ekið jafn mikið á Hringveginum í september. Útlit er fyrir að umferðin í ár aukist um 1,5 til 2 prósent samkvæmt spálíkani Vegagerðarinnar. Umferðin er aftur farin að aukast í hverjum mánuði en fyrr í ár dróst umferðin saman í nokkrum mánuðum að því er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Umferðin jókst mest á Suðurlandi

Umferðin í september um 16 lykilteljara á Hringveginum jókst um 2,5% milli ára. Aldrei hefur verið jafn mikil umferð í umræddum mánuði á Hringveginum.

Mest jókst umferðin á Suðurlandi eða um 5,2% milli ára í september en jókst minnst á Vesturlandi eða um 0,9% milli ára í september.

Núna hefur umferð aukist um 1,8% frá áramótum sem er örlítil meiri aukning en var á sama tíma á síðasta ári. Mest hefur umferð aukist í grennd við Höfuðborgarsvæðið en minnst á Vesturlandi.

Mest verið ekið á föstudögumÞað sem af er ári hefur mest verið ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.

Umferðin dróst saman á föstudögum eða um -0,4% en jókst mest á sunnudögum um 3%.

Deila grein: